Aðildarfélög

milli02

Aðildarfélög BHM

Bandalag 26 stéttarfélaga

Rétt til aðildar að samtökunum eiga öll stéttarfélög háskólamenntaðra manna og kjarafélög háskólamenntaðra launamanna sem ekki hafa samningsrétt. Meirihluti félagsmanna aðildarfélags skal hafa lokið námi sem tekur a.m.k. 3 ár á háskólastigi. Heimilt er að víkja frá meirihlutaskilyrðinu ef öll nýliðun í hlutaðeigandi fagstétt felst í a.m.k. 3ja ára námi á háskólastigi.

Að jafnaði skal stefnt að því að aðeins eitt félag sömu fagstéttar eigi aðild að samtökunum.
Aðildarfélög BHM eru 26 talsins. Flest félögin eru svokölluð fagstéttarfélög þar sem þau eru skipuð einstaklingum einnar fagstéttar þar sem menntun félagsmanna liggur til grundvallar störfum þeirra og hún veitir þeim tiltekin starfsréttindi. Flest eru félögin jafnframt fagfélög og starfa því bæði að hagsmunamálum sem varða kjör og réttindi félagsmanna jafnhliða faglegum og fagpólitískum málefnum stéttarinnar.

Félögunum hefur fjölgað jafnt og þétt frá því að 11 félög háskólamanna stofnuðu Bandalag háskólamanna árið 1958. Þær fagstéttir sem hafa verið með frá upphafi eru: náttúrufræðingar, lögfræðingar, dýralæknar, viðskipta- og hagfræðingar, sálfræðingar og félagar í Félagi íslenskra fræða.

Nýjasta viðbótin er Leikarafélag Íslands, en aðalfundur BHM í maí 2004 samþykkti formlega inngöngu þess í bandalagið.

Hér til hliðar eru tengingar inn á upplýsingar um formenn félaganna, skrifstofur, síma, heimilis-, net- og vefföng.

Þá má benda á Þjónustuskrifstofur sem reknar eru á vegum aðildarfélaga BHM. HugGarður, sem rekin er sameiginlega fyrir Fræðagarð, Félag íslenskra félagsvísindamanna, Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga, Stéttarfélag lögfræðinga og Stéttarfélag bókasafns- og upplýsingafræðinga. SIGL, sem rekin er fyrir Félag Geislafræðinga, Iðjuþjálfafélag Íslands, Félag lífeindafræðinga og Stéttarfélag sjúkraþjálfara. Að auki hafa Félagsráðgjafafélag Íslands og Þroskaþjálfafélag Íslands opnað sameiginlega þjónustuskrifstofu.


Senda grein



Flýtival


banner5

Language


Þetta vefsvæði byggir á Eplica