Um félagið

Fræðagarður

Borgartún 6 - 105 Reykjavík - sími: 581-2720 - fax: 588-9239 - huggardur@bhm.is

Fræðagarður er sameinað stéttarfélag Útgarðs og Félags íslenskra fræða - kjaradeildar. Félögin voru formlega sameinuð 19. júní 2008. Félag íslenskra fræða - kjaradeild var stéttarfélag þeirra sem starfa á menningarstofnunum eða vinna að viðfangsefnum tengdum menningu. Útgarður var eins konar safnhópur fyrir þá sem voru "utangarðs" í BHM, þ.e. áttu ekki gengt í önnur aðildarfélög þess. Hið nýja félag tekur yfir alla starfsemi félaganna. Félagsmenn í Útgarði og Félagi íslenskra fræða - kjaradeildar verða sjálfkrafa félagsmenn í Fræðagarði og halda öllum áunnum réttindum í hinu nýja félagi.

Hlutverk Fræðagarðs er að vera í forsvari fyrir félagsmenn sína við gerð kjarasamninga og við ákvarðanir er á einhvern hátt snerta kjör þeirra. Fræðagarður sinnir kjaramálum félagsmanna auk þess sem það er aðili að Bandalagi háskólamanna og tekur þátt í starfsemi þess. HugGarður er sameiginleg þjónustuskrifstofa fimm aðildarfélaga BHM, þ.m.t. Fræðagarðs.

Stjórn Fræðagarðs skipa:

                        


Flýtival

Umsóknareyðublað

Hér má finna umsóknareyðublað vegna umsóknar í Fræðagarð

meira

Upplýsingar fyrir launagreiðendur

Upplýsingar um félagsgjöld og greiðslur í sjóði BHM

meira

Sjóðir BHM og vísindasjóður

Umsóknir um styrki úr sjóðum BHM og vísindasjóð

meira

Útlit síðu:



Þetta vefsvæði byggir á Eplica