Fréttir

Námskeið á vegum BHM í haust

Fræðsludagskrá haustsins hjá BHM hefur nú litið dagsins ljós og hefur verið opnað fyrir rafræna skráningu á vefnum okkar.  Dagskráin er unnin á vegum stýrihóps BHM um fag- og kynningarmál og byggir á þrenns konar áherslum við efnisval.  Fræðslunni er þannig ætlað að mæta þörfum félagsmanna hvað varðar:

-að styrkja stöðu sína á vinnumarkaði, 

-frumkvöðlastarf og hvernig koma má þekkingu sinni á framfæri, 

- og leiðir til að bæta líðan í starfi og daglegu lífi.

 

Trúnaðarmannafræðsla:

Að venju er boðið upp á grunnnámskeið fyrir trúnaðarmenn þar sem farið er yfir helstu þætti sem þeir þurfa að kunna skil á.  Námskeiðin eru tilvalinn vettvangur til að hitta aðra trúnaðarmenn og bera saman bækur sínar og endar dagurinn jafnan á "trúnó" á kaffistofu BHM, þar sem allir trúnaðarmenn eru boðnir velkomnir, ásamt starfsfólki BHM og aðildarfélaga.

Í vor var gerð tilraun með sérstakt námskeið um sjóði þá sem félagsmenn eiga aðild að og mæltist hún vel fyrir.  Í haust verður slíkt námskeið annars vegar haldið hér í Borgartúninu og hins vegar á Akureyri.  Dagsetning sjóðadagsins fyrir norðan verður kynnt bráðlega.

Trúnaðarmenn eru hvattir til að nýta sér námskeiðin um einelti (haldið í Borgartúni) og fíknisjúkdóma (haldið á Akureyri), en þau eru opin öllum félagsmönnum.

 

Vísindaferðir BHM

Félagsmönnum úr ólíkum starfshópum innan BHM verður í haust gefinn kostur á að "sýna sig og sjá aðra" undir yfirskrift vísindaferða.  Að þessu sinni verða það bókasafns- og upplýsingafræðingar, náttúrufræðingar og hljómlistarmenn sem bjóða "heim" og kynna sín störf og eru þeim fyrirfram færðar þakkir fyrir gestrisnina. 

 

Minnt er á að námskeiðin eru opin öllum félagsmönnum (nema annað komi fram) og þátttakendum að kostnaðarlausu.

Skráning er rafræn á www.bhm.is og upplýsingar veitir Jóna Jónsdóttir, móttökufulltrúi BHM á netfanginu jona@bhm.is og í síma 5812090

 

 

Ályktun miðstjórnar BHM um lífeyrissjóðamál

Að gefnu tilefni gerir Bandalag háskólamanna þá kröfu til Framtakssjóðs Íslands, að hann sýni með óyggjandi hætti fram á að fjárfestingar af hans hálfu fylgi tilgangi og skilmálum sjóðsins. 

BHM galt við stofnun sjóðsins varhug við þeirri stöðu sem því gæti fylgt að sjóður á vegum lífeyrissjóða launamanna kæmi með virkum hætti að ákvarðanatöku um það hvaða fyrirtæki héldu velli í gegnum núverandi þrengingar.  Einnig var það þá skoðun BHM að erfitt gæti reynst að standa við ávöxtunarkröfu lífeyrissjóða með hlutdeild í slíkum fjárfestingarsjóði.

Verði Framtakssjóður Íslands ekki við óskum BHM um gegnsæi mun bandalagið fara þess á leit að lífeyrissjóðir þeir sem það á aðild að endurskoði aðkomu sína að sjóðnum.

Aukinheldur leggst BHM alfarið gegn frekari framlögum lífeyrissjóða félagsmanna sinna til Framtakssjóðs Íslands.

Lesa meira
 

BHM lýsir stuðningi við kjarabaráttu og samningsrétt slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.

 

Stjórn BHM samþykkti eftirfarandi ályktun á fundi sínum þann 9. ágúst.

Bandalag háskólamanna lýsir yfir stuðningi við kjarabaráttu Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og tekur undir réttmæti þess að laun þeirra endurspegli þá sérþekkingu og sérþjálfun sem starf þeirra krefst og ekki síður þá ábyrgð gagnvart bæði verðmætum og mannslífum sem þeir bera í starfi.

Bandalagið telur verulega ámælisvert þegar gagnaðili neitar að ræða lögmætar kröfur kjarafélaga og telur óheillavænlegt þegar núverandi ástand í efnahagsmálum er misnotað til þess að víkja frá eðlilegum samskiptareglum á vinnumarkaði.

 

Álag á vinnustað eykst - laun lækka eða standa í stað

Um leið og álag á vinnustað hefur aukist ár frá ári, hafa heildartekjur ríflega 70% svarenda í kjarakönnun BHM lækkað eða staðið í stað frá síðasta ári.

Kaupmáttarrýrnun er því afgerandi hjá þessum hópi, sem ekki er hægt að una við til lengri tíma litið. Það hlýtur að hafa veruleg áhrif í undirbúningi kjarasamningsviðræðna sem framundan eru síðar á þessu ári.

Lesa meira
 


Flýtival


banner7

Language


Þetta vefsvæði byggir á Eplica