Útilegukortið, Veiðikortið og hótelmiðar í sumar
Veiðikortið
Veiðikortið er mjög hagkvæmur valkostur sem hentar jafnt veiðimönnum sem fjölskyldufólki. Með Veiðikortið í vasanum er hægt að veiða nær ótakmarkað í rúmlega 30 veiðivötnum víðsvegar um landið sem og tjalda endurgjaldslaust við mörg þeirra. Upplýsingar um veiðisvæði er að finna á heimasíðu Veiðikortsins og í bæklingi sem fylgir með því. Kortið gildir fyrir einn fullorðinn og börn yngri en 14 ára í fylgd með korthafa. Sjóðfélögum OBHM býðst að kaupa kortið á 3500 kr. og 10 orlofspunkta (fullt verð er 6000 kr.).
Útilegukortið
Útilegukortið veitir ótakmarkaðan aðgang að tjaldsvæðum víða um landið svo lengi sem þau eru opin. Sjá má lista yfir samstarfsaðila á heimasíðu Útilegukortsins. Kortið veitir eiganda þess maka og fjórum börn undir 16 ára aldri fría gistingu á tjaldsvæðum samstarfsaðila Útilegukortsins.
Engin takmörk eru fyrir því hve oft má koma á hvert tjaldsvæði en einungis má gista í fjórar nætur samfellt í hvert skipti. Sjóðfélögum OBHM býðst að kaupa kortið á 8000 kr. og 21 orlofspunkt (fullt verð er 12900 kr.).
Hótelmiðar
OBHM býður sjóðfélögum upp á niðurgreidda gistingu á hótelum víða um landið. Allar upplýsingar um hótel sem eru í boði sumarið 2009 er að finna undir flipanum „hótelmiðar“.
Kaup á kortum og bókun á hótelmiðum
Veiðikortið, Útilegukortið og hótelmiðar eru seldir á bókunarvef OBHM. Smellið hér til að komast beint á innskráningarsíðu bókunarvefsins. Athugið að Veiðikortið og Útilegukortið er að finna undir flipanum „hótelmiðar“. Kortin eru póstsend til kaupanda innan viku frá kaupum en einnig er hægt að sækja þau á skrifstofu BHM, Borgartúni 6, 3. hæð. Vinsamlega látið vita ef ekki er óskað eftir póstsendingu korts.
