Um sjóðinn
Um Orlofssjóð BHM
Sumarið 2010 standa 67 orlofshús og íbúðir sjóðfélögum Orlofssjóðs BHM til boða bæði innanlands og erlendis. Þá gefst sjóðsfélögum einnig kostur á að kaupa Veiðikortið pg á ódýrri hótelgistingu víðs vegar um landið ásamt því að kaupa útilegukort sem gildir á tjaldstæði víðsvegar um landið.
Sjóðurinn á nú 47 húseignir víðs vegar um landið, þar af 37 í heilsársnotkun.
Auk húseigna sjóðsins sjálfs er nokkuð um samstarf við aðra orlofssjóði svo og beina leigu af öðrum aðilum.
Orlofssjóður BHM hefur það markmið að auðvelda sjóðfélögum að njóta orlofs og í því skyni á sjóðurinn og rekur orlofshúsnæði. Samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins hefur sjóðurinn einnig það hlutverk að semja um aðra orlofsmöguleika fyrir sjóðfélaga.
Sjóðurinn er rekinn af skrifstofu BHM, Borgartúni 6, 3ju hæð. Skrifstofa sjóðsins er opin virka daga frá kl. 9:00 -16:00.
