Sjúkrasjóður

Sjúkrasjóður Bandalags háskólamanna

Sjúkrasjóður er eingöngu fyrir félagsmenn á almennum vinnumarkaði - opinberir starfsmenn eru aðilar að Styrktarsjóði BHM

Réttur sjóðfélaga til úthlutunar úr sjóðnum er háður því að greitt hafi verið sjúkrasjóðsframlag vegna sjóðfélaga samtals í 6 mánuði og þar af 3 mánuði samfellt áður en tekjutap eða útgjöld, sem veita rétt til styrks úr sjóðnum, áttu sér stað.

Styrkir, dagpeningar, útfararstyrkur

Hlutverk sjóðsins er að veita sjóðsfélögum fjárhagsaðstoð vegna ólaunaðrar fjarveru frá vinnu vegna veikinda og slysa, styðja við endurhæfingu og forvarnir af ýmsum toga.

Umsóknir

Félagsmenn senda inn rafræna umsókn um styrki úr Sjúkrasjóði. Þetta gildir um alla styrki aðra en sjúkradagpeninga, útfararstyrk og dánarbætur.  Félagsmenn sem ætla að sækja um slíka styrki eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við skrifstofu BHM í síma 581 2090 eða senda fyrirspurn í tölvupósti. PNG_transparency_demonstration_2123

Afgreiðsla sjóðsins er á skrifstofu BHM að Borgartúni 6, 3ju hæð.



Flýtival


banner8

Language


Þetta vefsvæði byggir á Eplica