Starfsmenntunarsjóður

Starfsmenntunarsjóður BHM

STRIB

Markmið Starfsmenntunarsjóðs Bandalags háskólamanna er að tryggja fjárhagslegan grundvöll símenntunar og endurhæfingarnáms félagsmanna BHM. Flestir félagsmenn BHM hafa rétt til að sækja um í Starfsmenntunarsjóð BHM eða STRIB eins og sjóðurinn er oft kallaður. Til þess að eiga rétt til styrks úr sjóðnum þurfa greiðslur frá vinnuveitanda með sjóðsaðild að hafa borist í sjóðinn í a.m.k. eitt ár samfellt og félagsmaður má ekki hafa hlotið hámarksfyrirgreiðslu sl. 2 ár. Réttindi safnast ekki fyrir í sjóðnum og það að hafa aldrei sótt um kemur sjóðfélaga ekki til góða nema ef sjóðurinn er rýr en þá njóta þeir forgangs sem aldrei hafa fengið úthlutað áður.

Starfsreglur-10.-november-2009





Umsóknareyðublað - rafrænt

adobehnappur





Umsóknareyðublað - til útprentunar ef ekki reynist unnt að nota rafræna umsókn.






Reglugerð STRIB



Styrkupphæð

Hámarksstyrkur er kr. 60.000, fyrir verkefni sem hefjast 1. janúar 2007 eða síðar. En hækka um 25% úr 60.000 í 75.000 fyrir verkefni sem hefjast frá 1. janúar 2009. Frá og með 1. janúar 2010 hækkar styrkurinn upp í 100.000 yfir tveggja ára tímabil, talilð frá fyrstu greiðslu eða um 33,3% fyrir verkefni sem hefjast frá og með 1. janúar 2010 eða síðar.

Ferill umsókna

Stjórn sjóðsins, sem skipuð er tveimur fulltrúum fjármálaráðherra og tveimur frá BHM, kemur saman sex sinnum á ári til þess að fjalla um umsóknir: í janúar, mars, maí, júlí, september og nóvember. Umsóknir verða að hafa borist skrifstofu BHM fyrir 1. þess mánaðar er stjórn kemur saman. Allir umsækjendur fá skriflegt svar þar sem fram kemur hvort umsóknin hefur verið samþykkt eða ekki og hvaða gögn þurfi að berast á skrifstofu til þess að unnt sé að greiða styrkinn út. Þau gögn, reikningar (í frumriti) og staðfesting á að styrknum hafi verið varið eins og ætlast var til, þurfa að berast ekki síðar en 20. hvers mánaðar. Stefnt er að því að greiða styrkinn út 25. hvers mánaðar. Ef styrkloforðs er ekki vitjað eða tilskilin gögn berast ekki sjóðnum innan níu mánaða frá dagsetningu á tilkynningu um styrkveitingu fellur loforðið niður og gögn eru endursend umsækjanda.

Hvað er endurgreitt?

Hægt er að sækja um styrk vegna verkefna innanlands sem utan. Umsækjendur geta fengið styrk vegna ferða á ráðstefnur og námskeið. Hótel- og gistikostnaður, námsgjaldakostnaður vegna styttri og lengri námskeiða og hluti símakostnaðar vegna fjarnáms er greiddur. Launatap er ekki bætt úr sjóðnum. Verkefni sem tengjast ekki beint námi eða fagsviði þarf að taka sérstaklega fyrir á fundi stjórnar sjóðsins. Tölvu- og tungumálanám er þó almennt styrkt þó að námið tengist ekki beinlínis starfi eða fyrri menntun umsækjanda. Einnig hafa námskeið í framkomu og tjáningu verið samþykkt og annað nám. Styrkbeiðnum vegna föndurnámskeiða af ýmsum toga, ökunámskeiðum og öðrum námskeiðum er gjarnan hafa verið flokkuð sem tómstundanámskeið er yfirleitt hafnað.

Skil á gögnum til að fá styrkinn greiddan

Til að styrkur verði greiddur úr sjóðnum, eftir að stjórn hefur samþykkt umsóknina, þarf að skila inn gögnum fyrir 20. hvers mánaðar. Umsækjandi ber ábyrgð á því að skila inn tilskildum gögnum til sjóðsins.

Frumrit reikninga.

Greiðslur úr sjóðnum fara að jafnaði fram eftir á gegn framvísun reikninga í frumriti. Ef ekki er unnt að framvísa frumriti vegna greiðslu getur sjóðurinn greitt gegn staðfestu afriti reikningsins. Sé reikningur glataður að fullu verður stjórn sjóðsins að taka ákvörðun um afgreiðslu styrksins. Almennt miðast styrkurinn við að greiða náms,- ráðstefnu- og/eða ferðakostnað umsækjenda (hótelkostnaður fellur hér undir en ekki kostnaður við uppihald).

Sönnun nýtingu styrks.

Sýna þarf fram á, t.d. með prófskírteini,þátttakendalista eða bréfi umsjónarmanns verkefnis, að styrkurinn hafi verið nýttur til þeirra verkefna sem ætlast var til við úthlutun hans. Nauðsynlegt er því að halda til haga öllum gögnum.

Greiðsla styrksins.

Styrkir úr sjóðnum eru greiddir út 25. hvers mánaðar eða næsta virka dag á eftir. Ef um styrk vegna styttra náms, verkefnis eða ráðstefnu er að ræða (ein önn eða styttra), er styrkurinn greiddur þegar verkefni er lokið. Ef um er að ræða lengra nám er hægt að skila inn staðfestingu um að umsækjandi stundi námið og er þá styrkurinn greiddur út næsta útborgunardag.
Starfsmenn sjóðsins áskilja sér rétt til sveigjanleika í greiðslu styrksins. Sumarleyfi, almennir frídagar og óvænt atvik geta komið í veg fyrir að unnt sé að greiða út styrkinn 25. hvers mánaðar. Leitast verður við að greiða styrki úr sjóðnum út eins fljótt og aðstæður leyfa hverju sinni.

Skattaframtal

Styrkir úr Starfsmenntunarsjóði BHM eru framtalskyldir en ekki staðgreiðsluskyldir þar sem um endurgreiðslu á útlögðum kostnaði er að ræða. Því er áríðandi að geyma allir kvittanir í frumriti sem og önnur gögn sem hægt er að nálgast á skrifstofu sjóðsins eftir að styrkur hefur verið greiddur. Styrki úr Starfsmenntunarsjóði skal telja sem tekjur á skattframtali og jafnhá gjöld til frádráttar. Í athugasemdum framteljenda í skattaframtali skal vísa í sérstakt rekstraruppgjör þar sem tilgreindur er kostnaður vegna þess sem styrkt hefur verið. Sé þessum reglum fylgt eiga styrkir úr Starfsmenntunarsjóði BHM ekki að vera skattskyldir.





Flýtival


banner5

Language


Þetta vefsvæði byggir á Eplica