Dagskrá fræðslu
Starfsdagur um stöðugleikasáttmála
Starfsdagur Bandalags háskólamanna um stöðugleikasáttmála og aðkomu BHM að þjóðfélagsumræðu.
Dags.: mánudagur 2. nóvember 2009
Tími: 14-17
Staður: Borgartún 6, 3. hæð, fundarsalur Ásbrú.
Dagskrá:
14:00: Inngangur um stöðugleikasáttmála og þátttöku BHM í þjóðmálaumræðu
14:10: Hópastarf hefst
15:10: Kaffihlé
15:25: Samantekt hópa
16:00: Kynning á niðurstöðum hópa
Til að umræðan verði markviss og skilvirk, er þess farið á leit að þátttakendur undirbúi sig og lesi stöðugleikasáttmálann. http://www.island.is/endurreisn/stjornvold/adgerdir-stjornvalda/samantekt-adgerda/stodugleikasattmalinn/.
Umræðuhópar:
a) Ríkisfjármál (t.d. skattar, útgjöld, millifærslur)
b) Verklegar framkvæmdir og atvinnusköpun (t.d. aðkoma lífeyrissjóða, kynjasjónarmið)
c) Kjaramál (t.d. samningar félaganna, fagleg viðhorf á niðurskurðartímum, varnarlínur í niðurskurði, kynjasjónarmið)
d) Þátttaka BHM í þjóðmálaumræðu (virkni BHM í umræðunni, BHM sem vettvangur umræðna, upplýsingagjöf)
Yfirskrift hópa a, b og c endurspeglar hópaskiptingu í viðræðum í Karphúsi við gerð og eftirfylgni stöðugleikasáttmála, en hópur d snýr eins og sést að nærumhverfi BHM.
Hópstjórar koma úr röðum fulltrúa BHM í Karphúsviðræðum.
