Fæðingarorlof
Á heimasíðu Fæðingarorlofssjóðs eru meðal annars ítarlegar leiðbeiningar um.:
- Fæðingarorlofssjóð
- Fæðingarorlof
- Fæðingarstyrku
- Rétt til greiðslu úr sjóðnum
- Umsóknareyðublöð
- Greiðslur úr sjóðnum
Á við starfsmenn á almennum markaði
Fæðingarorlof telst til unnins tíma við útreikning orlofsréttar, þ.e. réttar til frítöku en ekki til orlofslauna.
Á við ríkisstarfsmenn og starfsmenn sveitarfélaga
Opinberir starfsmenn ávinna sér bæði orlofsrétt og rétt til orlofslauna í fæðingarorlofi.
Styrktarsjóður sér nú um greiðslu fæðingarstyrkja og hefur tekið við því hlutverki af FOS (Fjölskyldu- og styrktarsjóði). Fæðingarstyrkur er eingreiðsla og miðast við hvern félagsmann sem sækir um. Séu báðir foreldrar félagsmenn geta báðir sótt um fæðingarstyrk.
Jafnframt er bent á samkomulag BHM, BSRB og KÍ annars vegar og fjármálaráðherrra, Reykjavíkurborgar og Launanefndar sveitarfélaganna hins vegar. Í því felst aukinn réttur, m.a. er starfsmaður leystur undan vinnuskyldu á meðan á fæðingarorlofi stendur og nýtur einnig réttinda til greiðslu sumarorlofs, persónu- og orlofsuppbótar.
