Fræðsla fyrir trúnaðarmenn
BHM stendur reglulega fyrir námskeiðum fyrir trúnaðarmenn. Næstu námskeið verða haldin 5. og 6. mars 2009.
Trúnaðarmannanámskeið - grunnur
Grunnnámskeið fyrir trúnaðarmenn aðildarfélaga BHM. Á námskeiðinu verður farið yfir helstu atriði sem felast í hlutverki trúnaðarmanna. Námskeiðið er opið öllum trúnaðarmönnum sem og nefndar- og stjórnarmönnum aðildarfélaga BHM - athugið að umfjöllun verður sérstaklega sniðin að þörfum þeirra sem hafa nýlega tekið að sér hlutverk trúnaðarmanns eða annars konar trúnaðarstarf á vegum síns félags. Námskeiðið er haldið í Borgartúni 6, fimmtudaginn 5. mars kl. 12.00- 17.00
Smelltu hér til að skrá þig á námskeiðið.
Trúnó
Að kvöldi 5. mars, kl. 17.30 – 20, býður BHM trúnaðarmönnum, sem sækja námskeið dagana 5.-6. mars, til móttöku í Borgartúni 6. Léttar veitingar verða í boði og möguleiki á að hittast og spjalla við aðra trúnaðarmenn, starfsfólk og stjórn BHM í afslöppuðu umhverfi.
Trúnaðarmannanámskeið - framhald
Á þessu námskeiði verður sérstaklega fjallað um hlutverk og úrræði trúnaðarmanna nú þegar miklar breytingar eru að verða á vinnumarkaði og í þjóðfélaginu almennt. Námskeiðið er opið öllum trúnaðarmönnum sem og nefndar- og stjórnarmönnum aðildarfélaga BHM. Námskeiðið er haldið í Borgartúni 6, föstudaginn 6. mars kl. 8.30 - 13.00
Smelltu hér til að skrá þig á námskeiðið
