Efst á baugi

Málþing um samspil lífeyris og almannatrygginga 19. janúar 2012 - 17/1/2012

Markmið málþingsins er að auka þekkingu almennings á lífeyrismálum og þátttöku ríkisins í öðrum kjörum fólks á efri árum.

 

BHM stendur, ásamt BSRB og KÍ, að málþingi um samspil lífeyris og almannatrygginga haldið á Grand hótel Reykjavík (Gullteig) þann 19. janúar nk. frá kl.13.00-16.00.

Málþingið er mikilvægt innlegg í umræðuna um stöðu lífeyrismála og mögulegar breytingar á framtíðarfyrirkomulagi þeirra. Því er ætlað  að auka þekkingu almennings á lífeyrismálum og þátttöku ríkisins í öðrum kjörum fólks á efri árum.

 

Málþingið er öllum opið og aðgangur er ókeypis.

Smellið hér til að sjá dagskrá málþingsins.

 

Smellið hér til að skrá þátttöku.

 

FÍN hvetur félagsmenn sína, þó sérstaklega trúnaðarmenn að mæta til þessarar ráðstefnu.

 

 

Viðmiðunartaxti fyrir stundakennslu lausráðinna stundakennara við Háskóla Íslands - 3/1/2012

Eins og flestum er kunnugt um hafa háskólar ákveðið launataxta fyrir stundakennslu einhliða, án aðkomu stéttarfélaganna.  Þeir sem taka að sér slíka stundakennslu og eru launþegar hjá Háskóla Íslands hafa lýst yfir óánægju með þennan launataxta og því hefur Félag íslenskra náttúrufræðinga ákveðið að gefa út viðmiðunartaxta vegna stundakennslu lausráðinna stundakennara sem starfa við Háskóla Íslands.  Félagið hefur byggt upp sinn taxta fyrir stundakennslu á grunni stofnanasamnings félagsins við Háskóla Íslands. 

 

Viðmiðunartaxtinn gildir fyrir vorönn 2012 og hvetur félagið félagsmenn sína og aðra að taka ekki að sér kennslu fyrir lægri launataxta en birtur er hér fyrir neðan:

 

Viðmiðunartaxti fyrir stundakennslu lausráðins stundakennara við háskóla

 VOR 2012   - Launataxti á eingilda vinnustund*

  Menntun: 1.jan.2012
  Nemi      2.853    
  BA/BS      3.187    
  MS      3.717    
  DR      4.103    
   

* Kennslustundir eru metnar með eftirfarandi hætti:

  •  - Kennsla sem krefst ekki undirbúnings er metin til einnar vinnustundar (eingild vinnustund).
  •  - Endurtekin kennsla er metin til tveggja vinnustunda.
  •  - Verklegar æfingar, dæmatímar, almennir umræðufundir (ekki sjálfstæður fyrirlestur) o.þ.h. eru metnir til þriggja vinnustunda.
  •  - Fyrirlestrar/Undirbúningsfrekir umræðufundir eru metnir til  fjögurra vinnustunda.

 

Allar frekari upplýsingar veitir félagið í síma 568-9616 og um netfangið fin@bhm.is.

 

09.01.2012: Sjá frétt á Eyjunni.

 

Eldra efni


Tilkynningar

Fræðsludagskrá BHM vorið 2012 - 2.1.2012

Boðið verður upp á 25 áhugaverða fyrirlestra og erindi fyrir félagsmenn aðildarfélaga BHM vorið 2012 og FÍN hvetur þig til að kynna þér það sem boðið er upp á að þessu sinni.   Hægt er að skoða fræðsluskema vorannar 2012 með því að smella hér.  Mikilvægt er að skrá sig til þátttöku og skráning hefst 3. janúar nk.  Vinsamlegast skráið ykkur með því að smella hér.  Smellið hér til að fá nánari upplýsingar af heimasíðu BHM.

 

Orlofshúsin; allar helgar lausar í janúar! - 2.1.2012

Allar helgar eru lausar í sumarhúsum FÍN nú í janúar.  Ef þú vilt bóka þér helgi/viku þá endilega sendu okkur tölvupóst íá netfangið fin@bhm.is.  Athugið að frá og með 1. janúar 2012 tekur gildi ný verðskrá vegna útleigu félagsins á sumarhúsum þess og verður hún eftirfrandi:

 

  • Fullsæll, vikuleiga kr. 20.000, helgin kr. 10.000 og hver viðbótardagur kr. 2.000.
  • Skógarkot, vikuleiga kr. 28.000, helgin kr. 14.000 og hver biðbótardagur kr. 2.800
  • Blöndalsbúð, vikuleiga kr. 32.000 (aðeins til útleigu valdar vikur á sumrin)
  • Flókalundur, vikuleiga kr. 20.000 (aðeins til útleigu valdar vikur á sumrin)

 

 

Eldri tilkynningar


Fréttir af BHM

Forkastanleg ummæli innanríkisráðherra - 25.1.2012

 

BHM gerir alvarlegar athugasemdir við ummæli innanríkisráðherra, Ögmundar Jónassonar, í ræðustól Alþingis í gær (24/1).  Þar lét ráðherra að því liggja að starfsmenn stjórnarráðsins væru háðir eldvatni, ferðalögum til Brussel, hóteldvöl og dagpeningum.

Slík ummæli ráðherra, um starfsfólk sitt og stjórnarráðsins alls, eru forkastanleg og með ólíkindum að fyrrum leiðtogi opinberra starfsmanna til áratuga láti þau frá sér fara.

BHM mótmælir þessari aðför að faglegum heilindum starfsfólks stjórnsýslunnar og krefst þess að Ögmundur biðji starfsfólk sitt afsökunar á ómaklegum ásökunum. Lesa meira
 

Fullt var út úr dyrum á málþingi BHM, BSRB og KÍ - 23.1.2012

Alls mættu rúmlega 400 manns til að hlýða á þau erindi sem þar voru flutt.

Lesa meira
 

Eldri fréttir af BHM




Útlit síðu:




Þetta vefsvæði byggir á Eplica