Efst á baugi

Sumaropnun á skrifstofu FÍN - 2/6/2010

Félag íslenskra náttúrufræðinga mun ekki loka skrifstofum sínum í sumar heldur munu formaður og framkvæmdastjóri skiptast á með viðveru á skrifstofu FÍN.  Óhjákvæmilega getum við þurft að sinna erindum á opnunartíma og því biðjum við félagsmenn okkar að hafa samband við skrifstofuna og þannig ganga úr skugga um að einhver sé á staðnum, en skrifstofan er opin frá 9-12 og 13-16.  Símsvörun er frá 8:00 - 18:00, ef annað hvort okkar er ekki við þá vinsamlegast skiljið eftir skilaboð og við hringjum eins fljótt og kostur er. 

 

Aðalfundur BHM er í dag, 29. apríl - 30/4/2010

Aðalfundur BHM verður í dag og því verður engin viðvera framkvæmdastjóra og formanns á skrifstofu FÍN.  Ef málið er aðkallandi og nauðsynlegt er að ná í okkur í dag þá er möguleiki að ná í okkur  í síma 864-9616 (Maríanna) eða 899-2482 (Páll) og við reynum að svara þeim símtölum sem berast eða hafa samband við fyrsta tækifæri.
 

Eldra efni


Tilkynningar

Laust sumarhús í Miðhúsum við Egilsstaði yfir verslunarmannahelgina - 29.7.2010

 

Athygli er vakin á því að það var að losna sumarhús að Miðhúsum við Egilsstaði á morgun 30.júlí-6.ágúst.
 
Bókanir fara fram  á Bókunarvefnum https://secure.bhm.is/orlofsvefur/, þar þarf að skrá sig inn með því að fylla á í viðeigandi reiti.

 

Eldri tilkynningar


Fréttir af BHM

Álag á vinnustað eykst - laun lækka eða standa í stað

- 24.6.2010

Um leið og álag á vinnustað hefur aukist ár frá ári, hafa heildartekjur ríflega 70% svarenda í kjarakönnun BHM lækkað eða staðið í stað frá síðasta ári.

Kaupmáttarrýrnun er því afgerandi hjá þessum hópi, sem ekki er hægt að una við til lengri tíma litið. Það hlýtur að hafa veruleg áhrif í undirbúningi kjarasamningsviðræðna sem framundan eru síðar á þessu ári.

Lesa meira
 

BHM krefst kjaraleiðréttingar - 24.6.2010

BHM er reiðubúið til samráðs og samvinnu um leiðir til að takast á við efnahagsvanda þjóðarinnar.

 

Bandalagið minnir á að laun flestra háskólamanna hafa verið fryst, ef ekki lækkuð, frá því um mitt ár 2008. 

 

Bandalagið mun því aðeins taka þátt í heildarsátt um kjaramál á íslenskum vinnumarkaði að kjarasamningar verði gerðir við aðildarfélög BHM og að í kjarasamningaviðræðum verði tekið tillit til eftirfarandi þátta:

  • Leiðrétt verði kaupmáttarskerðing félagsmanna frá miðju ári 2008.
  • Markvisst verði unnið að því að háskólamenntun sé metin til launa.
  • Lokið verði við óuppfyllt ákvæði frá fyrri samningum, svo sem um nýtt fyrirkomulag sí- og endurmenntunar.
  • Tekið verði tillit til námslána við umfjöllun um skuldabyrði heimilanna í landinu.
  • Lög um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna verði endurskoðuð. Almennt ákvæði um yfirvinnuskyldu verði fellt út og  einnig verði ákvæði um skyldu til að hlíta breytingum á starfi fellt út eða því breytt þannig að ákvæðum ráðningarsamninga verði ekki breytt einhliða.
  • Vinnulöggjöf verði breytt þannig að nýr kjarasamningur gildi frá þeim degi þegar sá sem fyrir er fellur úr gildi.
  • Staðið verði við fyrirheit um starfsendurhæfingarsjóð.
  • Uppsagnarfrestur starfsmanna 55 ára og eldri verði lengdur.
Lesa meira
 

Eldri fréttir af BHM




Útlit síðu:




Þetta vefsvæði byggir á Eplica