Jákvæð karlmennska og jafnrétti
Hádegisfyrirlestur Þorsteins V. Einarssonar mánudaginn 31. janúar á Teams
BHM býður félagsmönnum aðildarfélaga sinna upp á hádegisfyrirlestur með hinum geysivinsæla Þorsteini V. Einarssyni - stjórnanda hlaðvarpsins Karlmennskan .
- Hvernig og hvers vegna styður jákvæð karlmennska við jafnrétti?
- Hvernig bitnar skaðleg karlmennska á strákum og körlum?
Þorsteinn talar um hvað við getum gert sem einstaklingar til að hafa jákvæð áhrif á líf okkar og samferðafólks út frá hugmyndum um karlmennsku.
Þorsteinn V. Einarsson er kennari og kynjafræðingur. Hann hefur vakið mikla athygli fyrir fyrirlestra sína, pistla, greinaskrif og fræðslumiðlun á samfélagsmiðlum auk þáttagerðar um karlmennsku og jafnréttismál. Hann heldur úti hinu vinsælu hlaðvarpi Karlmennskan, þar sem hann ræðir karlmennsku, jafnrétti, ofbeldi, femínisma og ýmsar hliðar þessara mála við fólk úr ólíkum geirum.
Fyrirlesturinn er opinn öllum félagsmönnum aðildarfélaga BHM þeim að kostnaðarlausu, en skráning hér er nauðsynleg. Námskeiðið verður tekið upp og gert aðgengilegt á NámskeiðasíðuBHM í viku í kjölfarið.
Mánudaginn 31. janúar kl. 12:00-13:00 á Teams, skráning hér.