BHM hvetur til þátttöku í Grænu göngunni á sumardaginn fyrsta

Sumardagurinn fyrsti er á morgun, 23. apríl, og af því tilefni stefnir Náttúruverndarhreyfing landsins að því að halda upp á daginn með Grænni göngu fyrir náttúru Íslands. BHM tekur heilshugar undir mikilvægi þess að standa vörð um náttúruna, lýðheilsu og réttlát umskipti – mál sem snerta samfélagið allt og framtíð vinnandi fólks.

Í stefnu BHM er lögð rík áhersla á að sjálfbær þróun sé leiðarljós í allri ákvarðanatöku, hvort sem er hjá stjórnvöldum, fyrirtækjum eða einstaklingum. Loftslagsmarkmið og kolefnishlutlaus framtíð nást ekki nema með skýrum aðgerðum og samvinnu allra. Þar gegnir háskólamenntað fólk lykilhlutverki með þekkingu, rannsóknum, nýsköpun og fræðslu.

Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM lætur sig mál grænu göngunnar varða og hvetur félagsfólk eindregið til að taka þátt. Sjálfbær þróun og réttur almennings og frjálsra félagasamtaka til áhrifa í stefnumótun eru sameiginlegir hagsmunir sem kalla á samstöðu.

BHM hvetur alla sem komast til að ganga með á morgun og sýna í verki að við séum málsvarar náttúrunnar. Látum rödd okkar hljóma í þágu verndar vistkerfa og lífríkis Móður jarðar.

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Opnunartími síma þjónustuvers:
mán. til fim. 10:00 - 14:00
fös. 10:00 - 13:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt