Á fundinum verður sjónum beint að samspili opinberrar stefnu, háskólasamfélags og atvinnulífs og hvort núverandi umgjörð styðji við þá framtíðarsýn að byggja hagvöxt á þekkingu, sérhæfingu og nýsköpun.
Hagfræðingar BHM fjalla um þróun framleiðni og hagvaxtar og einnig verður rætt um hlutverk háskólasamfélagsins í verðmætasköpun. Í nýjasta Hagkorni BHM kemur fram að hagvöxtur á Íslandi byggist í auknum mæli á fjölgun starfa fremur en aukinni verðmætasköpun á hverja vinnustund.
Að lokum fara fram pallborðsumræður fulltrúa háskóla, atvinnulífs og nýsköpunar.
Dagskrá
8:30 – Hús opnar – morgunverður
9:00 – Opnunarávarp: Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM
9:15 – Karl Guðmundsson, verkefnastjóri stórfjárfestinga hjá forsætisráðuneytinu með erindið Atvinnustefna til verðmætasköpunar.
9:30 – Hjálmar Gíslason, stofnandi og framkvæmdastjóri GRID með erindið Mannauður, rannsóknir, hagnýting: Samspil háskóla og atvinnulífs
9:45 – Ingvar Freyr Ingvarsson og Sigrún Brynjarsdóttir, hagfræðingar BHM með erindið Frá háskóla til verðmæta: hvar slitna tengslin?
10:00 – Pallborðsumræður
- Fundarstjóri: Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM
- Anna Hrefna Ingimundardóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins
- Pétur Már Halldórsson, fv. framkvæmdastjóri NOX MEDICAL
- Rögnvaldur Jóhann Sæmundsson, aðstoðarrektor Háskóla Íslands
Fundurinn er opinn öllum, og hvetur BHM félagsfólk aðildarfélaga og hagaðila til að mæta og taka þátt í umræðunni um mikilvægar áskoranir og tækifæri fyrir íslenskt hagkerfi.
Endilega takið daginn frá!
Skráning fer fram hér: