Vellíðan í vinnu er sameiginlegt verkefni

Evrópska vinnuverndarvikan hófst 19. október og stendur til 24. október. Að þessu sinni er sjónum beint að andlegri heilsu og því hvernig skapa megi vinnuumhverfi þar sem öryggi, virðing og vellíðan eru í fyrirrúmi.

Yfirskrift átaksins næstu þrjú árin er Together for mental health at work, eða „Stuðlum saman að vellíðan í vinnu“. Hún undirstrikar að góð vinnustaðamenning verður ekki til af sjálfu sér heldur mótast hún af samskiptum, viðhorfum og daglegum ákvörðunum á vinnustaðnum.

Vinnueftirlitið hefur lagt áherslu á að heilbrigð vinnustaðamenning sé grunnur að öryggi og vellíðan starfsfólks. Þar skipta góð samskipti, gagnkvæmt traust og virðing miklu máli, ásamt því að brugðist sé við þegar áskoranir koma upp í starfsumhverfinu.

BHM styður átakið og lætur sig málefnið varða. Andleg heilsa, vellíðan og rétturinn til öruggs og heilbrigðs starfsumhverfis eru mikilvægir þættir í góðu vinnulífi. Það er sameiginlegt verkefni stjórnenda og starfsfólks að stuðla að vinnustaðamenningu sem einkennist af virðingu, trausti og góðum samskiptum.

Í tilefni vinnuverndarvikunnar er vakin athygli á fróðleik og verkfærum sem geta nýst vinnustöðum við að byggja upp og viðhalda heilbrigðri menningu. Allir geta lagt sitt af mörkum, því vellíðan í vinnu er sameiginlegt verkefni.

Lesa nánar um átakið „Stuðlum saman að vellíðan í vinnu“.

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt