47% þjóðarsátt?

Það var einbeittur hópur forystufólks atvinnurekenda og stéttarfélaga sem settist niður með ríkissáttasemjara á milli jóla og nýárs. Stefnan skal sett á „þjóðarsátt“, þrátt fyrir að meirihluti launakostnaðar í hagkerfinu liggi utan samningssviðs aðila og að stór hluti þjóðarinnar sé í öðrum stéttarfélögum. Það má öllum vera ljóst að þessi leikflétta er ekki líkleg til að skila árangri. Mikið meira þarf til og fleiri þurfa að koma að borðinu ef stuðla á að auknum stöðugleika og víðtækri sátt um kjarabætur á árinu 2024.

Aðeins um 47% umboð fyrir þjóðarsátt

Í nýrri skýrslu Kjaratölfræðinefndar má sjá vægi heildarsamtaka í vísitölu grunntímakaups á vinnumarkaði en vægið veitir vísbendingu um hlutdeild samtaka í launakostnaði hagkerfisins. Athygli vekur að ASÍ fer aðeins fyrir 50% vísitölunnar en hinn helmingurinn samanstendur af BHM, BSRB, KÍ, stéttarfélögum utan heildarsamtaka (t.a.m. hjúkrunarfræðingum og læknum) og launafólki utan stéttarfélaga. Gróflega má áætla að bandalag stéttarfélaga ASÍ, sem nú boðar nýja þjóðarsátt, fari fyrir um 47% af grunnlaunavísitölunni. Meirihlutaumboð fyrir þjóðarsátt er því einfaldlega ekki til staðar og allra síst ef hugmyndin er að semja um krónutöluhækkanir fyrir allt launafólk á vinnumarkaði.

Meira en 10% fyrir sum en 2% fyrir önnur?

Samkvæmt fréttum hljóða launakröfur hópsins upp á 26.000 króna flata hækkun á öll laun, háð skilyrðum um tugmilljarða tekjutilfærslur til hópa í lægri enda tekjudreifingarinnar. Ætla má að flatar krónutöluhækkanir og auknar barna- og vaxtabætur muni jafnvel leiða til meira en 10% aukningar í ráðstöfunartekjum hjá Eflingarhópum en minnst 1,5-2% hjá háskólamenntuðum sérfræðingum. Í þeim hópi er fólk sem hefur nær enga kaupmáttaraukningu hlotið yfir lengri tíma t.a.m. sérfræðingar í heilbrigðis- og menntakerfi hjá ríkinu. Staðreyndin er sú að krónutöluhækkanir lífskjarasamningsins leiddu til kaupmáttarrýrnunar hjá stórum hluta millistéttarinnar á árunum 2019-2024. Stéttarfélög háskólamenntaðra eru sjálfstæðir samningsaðilar sem munu ekki samþykkja kjarasamning sem er sérsniðinn að þörfum láglaunahópa á almennum vinnumarkaði. Og allra síst ef stéttarfélögunum er haldið frá samtalinu um fórnarskipti launahækkana, verðbólgu og vaxta.

Heildarhagsmunir og sameiginlegt verkefni

Stærsta áskorun hagstjórnarinnar á árinu 2024 er að leiða saman alla aðila vinnumarkaðar til að treysta verðstöðugleika á Íslandi. Það verður ekki gert með því að semja eingöngu um miklar kjarabætur hjá láglaunahópum og sýna millistéttinni og kröfum hennar tómlæti. Það má öllum vera ljóst að slík leikflétta mun aðeins leiða til átaka og aukins efnahagslegs- og félagslegs óstöðugleika. Ef stuðla á að langtímasamningum og auknum stöðugleika þurfa stjórnvöld að hafa hugrekki til að samhæfa alla aðila vinnumarkaðar á fyrstu vikum nýs árs. Heildarsamtökin á opinbera vinnumarkaðnum þurfa að koma að þeirri vinnu. BHM er reiðubúið í samtalið um þær stóru áskoranir sem við blasa t.a.m. um leiðirnar til að lækka verðbólgu og vexti. Sá einbeitti hópur sem settist niður með ríkissáttasemjara milli jóla og nýárs hefur ekki umboð til að lýsa yfir þjóðarsátt fyrir hönd heildarinnar.

Greinin birtist á visir.is 1. janúar 2024

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Opnunartími þjónustuvers:
mán. til fim. 9:00 - 15:00,
fös. 9:00 - 13:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00,
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt