Er rétt að afnema áminningarskyldu?

Íslenskur vinnumarkaður og opinber stjórnsýsla byggja á trausti, fagmennsku og sterkri réttarhefð. Háskólamenntað starfsfólk gegnir þar lykilhlutverki ekki aðeins sem sérfræðingar heldur sem burðarásar í framkvæmd laga og þjónustu við almenning. Forsenda þess að þetta hlutverk sé rækt af sjálfstæði og heilindum er að starfsumhverfið einkennist af fyrirsjáanleika, gagnsæi og skýrum leikreglum.

Frumvarp um afnám lögbundinnar áminningarskyldu gagnvart starfsfólki ríkisins setur þessa grundvallarþætti í uppnám. Þótt markmiðin séu sögð lúta að nútímalegri mannauðsstjórnun vakna alvarlegar spurningar um hvort verið sé að fórna réttaröryggi fyrir yfirborðslega skilvirkni.

Nútímavæðing krefst skýrra leikreglna

Nútímavæðing felst ekki í því að fjarlægja lögbundna vernd starfsfólks heldur í því að tryggja skýrari ramma og aukna ábyrgð. Áminningarskyldan er hluti af lágmarksréttarvernd sem tryggir:

  • Meðalhóf: Að ekki sé gengið harðar fram en þörf krefur.
  • Jafnræði: Að sambærileg mál fái sambærilega meðferð.
  • Andmælarétt: Að starfsfólk fái raunhæft tækifæri til úrbóta áður en gripið er til uppsagnar.

Norræna módelið byggir á jafnvægi

Oft er vísað til Norðurlandanna sem fyrirmyndar, en sú tilvísun verður að byggja á réttri greiningu. Í Danmörku, Noregi og Svíþjóð eru reglur þær að starfsmenn fái skýra aðvörun og frest til úrbóta. Fyrirliggjandi frumvarp endurspeglar ekki þetta norræna jafnvægi heldur veikir það formfestuna án þess að tryggja sambærileg úrræði. Jafnframt er umhugsunarvert að á almennum vinnumarkaði hinna Norðurlandanna skuli vera til staðar reglur um tiltekna ráðningarvernd, sem ekki eru til staðar með sama hætti hér á landi.

Skortur á gögnum og raunhæfar leiðir

Frumvarpið byggir á fullyrðingum um óskilvirkni án þess að framvísað sé tölulegum gögnum um umfang vandans eða mati á vægari úrræðum. Ef markmiðinu er raunverulega ætlað að auka fagmennsku í mannauðsmálum ríkisins væri skynsamlegra að styrkja rammann fremur en að veikja hann. Það gerum við með:

  1. Skýrari undanþágur í alvarlegum tilvikum.
  2. Markvissara úrbótaferli með góðri eftirfylgni.
  3. Raunverulegu samráði við starfsfólk og stéttarfélög.

Niðurstaðan er skýr: Traust byggist á reglum, ekki geðþótta. Á tímum þar sem ákvarðanataka verður sífellt flóknari og gagnadrifnari er þörf á skýrari reglum ekki færri. Við megum ekki færast frá fyrirsjáanleika til réttaróvissu.

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Opnunartími síma þjónustuvers:
mán. til fim. 10:00 - 14:00
fös. 10:00 - 13:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt