
Verkefni starfshópsins eru:
- Að kortleggja nýlegar breytingar á lánaframboði og áhrif þeirra á neytendur – og greina í kjölfarið hvort gera þurfi breytingar á löggjöf um fasteignalán til neytenda. Þetta er gert til að stuðla að því að staða lántaka sé ekki lakari en hún var fyrir áðurnefnda vaxtadóma.
- Að greina hvort og þá hvernig taka megi upp nýtt húsnæðislánakerfi hér á landi með það fyrir augum að innleiða kerfi sem tryggi meira gagnsæi, sveigjanleika og fyrirsjáanleika fyrir neytendur. Erlendar fyrirmyndir verða hafðar til hliðsjónar og rýnt í kosti og galla annarra húsnæðislánakerfa, einkum í nágrannaríkjunum.
Formaður starfshópsins er Marinó G. Njálsson og í hópnum eiga sæti fulltrúar frá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, ASÍ, BHM, BSRB, fjármála- og efnahagsráðuneytinu, Hagsmunasamtökum heimilanna, Landssamtökum lífeyrissjóða, Neytendasamtökunum, Samtökum atvinnulífsins, Samtökum fyrirtækja í fjármálaþjónustu og Seðlabanka Íslands.
„Skipun hópsins er í samræmi við áherslur stjórnvalda í húsnæðismálum. Nýlegar breytingar á lánamarkaði síðastliðna mánuði í tengslum við vaxtadómana svokölluðu hafa undirstrikað nauðsyn þess að greina hvort koma megi á sanngjarnara og gagnsærra húsnæðislánakerfi hér á landi til lengri tíma litið,“ segir Ragnar Þór.
BHM leggur áherslu á að niðurstöður vinnunnar styrki neytendavernd, auki fyrirsjáanleika á lánamarkaði og tryggi að staða lántaka verði ekki lakari en áður.