Skip to content

BHM endurnýjar samning við Akademias

Aðgangur að fyrirtækjaskólanum er félagsfólki aðildarfélaga BHM að kostnaðarlausu. Enn fleiri námskeið í boði en áður.

BHM hefur endurnýjað samstarfssamning sinn við Akademias fyrir árið 2023-2024. Nú hafa námskeið frá Tækninám bæst við í úrvalið sem fyrir er í rafrænum fyrirtækjaskóla Akademias.

Nú má þar finna fjölda námskeiða um tæknimál, námskeið í forritum Office pakkans, námskeið í netöryggi og margt fleira.

Alls er um að ræða 105 námskeið og eru fleiri væntanleg.

Fyrri kóðar í fyrirtækjaskólann hafa nú runnið út. Við biðjum við félagsfólk um að skrá sig að nýju til fá aðgang næsta árið, eða til loka febrúar 2024.