
Á fundi með forsvarsfólki aðildarfélaga BHM þann 5. nóvember fjallaði Gylfi Magnússon, prófessor við Háskóla Íslands, um breytingarnar sem gerðar voru á lífeyriskerfi opinberra starfsmanna árið 2017 og afleiðingar þeirra fyrir sjóðfélaga.
Meginniðurstaða Gylfa er að breytingarnar hafi verið verulega gallaðar og leitt til mikils fjárhagslegs tjóns fyrir sjóðfélaga. Með breytingunum var A-deild LSR færð úr kerfi skilgreindra réttinda, þar sem launagreiðendur báru ábyrgð á lífeyrisskuldbindingum, yfir í kerfi skilgreindra iðgjalda, þar sem sjóðfélagar bera sjálfir áhættu af ávöxtun og lýðfræðilegri þróun. Breytingarnar voru lögfestar þrátt fyrir andstöðu samtaka opinberra starfsmanna og án þess að sjóðfélagar gætu valið að halda fyrri réttindum sínum.
Í erindinu lagði Gylfi einkum áherslu á eftirfarandi atriði:
- Rangar tryggingafræðilegar forsendur. Við breytinguna árið 2017 var ekki tekið nægilegt tillit til fyrirsjáanlegrar lengingar meðalævi eða þess að sjóðfélagar LSR lifa að jafnaði lengur en landsmenn almennt. Þessar skekkjur voru þekktar en ekki leiðréttar fyrr en árin 2019 og 2021, eftir að ábyrgð ríkisins hafði verið afnumin.
- Skerðing lífeyrisréttinda. Árið 2023 var áunnum réttindum sjóðfélaga A-deildar LSR fækkað og hægt á framtíðarréttindaávinnslu. Fjárhagsleg áhrif þessara aðgerða voru metin samtals 163,5 milljarðar króna og áætlaði Gylfi að lífeyrisgreiðslur sjóðfélaga myndu að jafnaði lækka um rúm 10%. Hefði fyrra kerfi verið óbreytt hefði kostnaðurinn fallið á launagreiðendur en ekki sjóðfélaga.
- Vanmetið verðmæti ríkisábyrgðar. Gylfi benti á að sjóðfélagar hefðu ekki aðeins tapað réttindum vegna rangra útreikninga heldur einnig verðmætri tryggingu sem fólst í ábyrgð ríkisins. Að hans mati var ekkert tillit tekið til verðmætis þessarar ábyrgðar þegar áhættan var færð yfir á sjóðfélaga.
- Gallar á framkvæmd og stjórnsýslu. Gylfi taldi að breytingarnar hefðu ekki samræmst alþjóðlegum viðmiðum um vernd áunninna lífeyrisréttinda, valfrelsi sjóðfélaga og samráð við launþega. Hann dró jafnframt í efa að meðferð þegar áunninna réttinda hefði samræmst stjórnarskrárvernd eignarréttar.
Erindi Gylfa varpar mikilvægu ljósi á þær grundvallarforsendur sem lágu að baki samkomulaginu um breytingar á lífeyriskerfi opinberra starfsmanna árið 2016, einkum fyrirheitið um að lífeyrisréttindi þáverandi sjóðfélaga héldust jafnverðmæt eftir breytingarnar. Niðurstöður hans gefa tilefni til frekari umræðu um ábyrgð ríkisins og hvernig tryggja megi réttindi þeirra sjóðfélaga sem breytingarnar tóku til.
Málshöfðun gegn íslenska ríkinu
Í nóvember 2024 var höfðað mál gegn íslenska ríkinu vegna skerðingar á lífeyrisréttindum sjóðfélaga í A-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins (LSR). Málið er rekið með stuðningi samtaka launafólks fyrir hönd hjúkrunarfræðings og snýst einkum um hvort breytingarnar á lífeyriskerfinu árið 2017 og skerðing réttinda árið 2023 hafi falið í sér ólögmæta skerðingu áunninna lífeyrisréttinda sem njóta verndar eignarréttarákvæðis 72. gr. stjórnarskrárinnar.
Byggt er á því að lífeyrisréttindi sem áunnist hafa með iðgjaldagreiðslum njóti stjórnarskrárverndar og að löggjafanum séu settar skorður við að skerða þau afturvirkt. Málið er enn til meðferðar hjá dómstólum og hefur grundvallarþýðingu fyrir réttarvernd áunninna lífeyrisréttinda og mörk heimilda löggjafans til að skerða þau.






