Desemberuppbót 2022

Allt félagsfólk aðildarfélaga BHM á að fá greidda desemberuppbót.

Á þessu ári er uppbótin sem hér segir ef miðað er við fullt starf:

  • Ríki: 98.000 kr.
  • Reykjavíkurborg: 109.100 kr.
  • Samband íslenskra sveitarfélaga: 124.750 kr.
  • Samtök atvinnulífsins (aðalkjarasamningur): 98.000 kr.

Full uppbót miðast við fullt starfshlutfall á viðmiðunartímabili eins og það er skilgreint í kjarasamningi sem viðkomandi starfsmaður fellur undir. Hjá ríki og Reykjavíkurborg er tímabilið 1. janúar til 31. október. Hjá sambandi íslenskra sveitarfélaga er tímabilið 1. janúar til 30. nóvember. Uppbótin er hlutfallsleg hafi starfsmaður verið í hlutastarfi eða starfað hluta úr ári.

Starfsmenn sem taka laun samkvæmt kjarasamningi við Samtök atvinnulífsins fá greidda desemberuppbót eigi síðar en 15. desember ár hvert, miðað við starfshlutfall og starfstíma.

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Opnunartími þjónustuvers:
mán. til fim. 9:00 - 15:00,
fös. 9:00 - 13:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00,
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt