
Niðurstaða meirihluta nefndarinnar er að launatöfluauki virkist ekki á þessu viðmiðunartímabili og því verða engar breytingar á launatöflum opinberra starfsmanna í september 2026.
Þeir BHM-hópar sem ekki fengu hækkun í september í fyrra fá nú sömu 1,24% hækkun og aðrir hópar fengu fyrir ári.
Tilgangur launatöfluauka, sem kveðið er á um í viðauka kjarasamninga stéttarfélaga við opinbera launagreiðendur, er að tryggja að launaþróun starfsfólks á opinberum markaði haldist í hendur við launaþróun sambærilegra hópa á almennum markaði. Við útreikningana styðst nefndin við gögn Hagstofu Íslands um þróun launavísitölu á almennum markaði og hjá heildarsamtökum opinberra starfsmanna, auk þess sem leiðrétt er fyrir áhrifum tiltekinna kjarasamningsbundinna breytinga, meðal annars vegna virðismats starfa og jöfnunar launa milli markaða.
Fulltrúi Kennarasambands Íslands skrifar undir niðurstöðuna en gerir fyrirvara við niðurstöðu KÍ hjá ríkinu.




