Landsréttur dæmir uppsögn hjá Sjúkratryggingum Íslands ólögmæta – BHM metur næstu skref

Landsréttur kvað upp dóm miðvikudaginn 14. október 2026 í máli fyrrverandi deildarstjóra hjá Sjúkratryggingum Íslands (SÍ), sem er félagsmaður í Lyfjafræðingafélagi Íslands. Rétturinn komst að þeirri niðurstöðu að uppsögnin hefði verið ólögmæt, enda hefði hún verið liður í hópuppsögn sem SÍ hefðu ekki staðið að í samræmi við lög.

Fordæmisgildi fyrir annað starfsfólk

BHM lítur svo á að dómur Landsréttar hafi beint fordæmisgildi fyrir annað starfsfólk sem sagt var upp störfum á sama tíma og við sömu aðstæður. Bandalagið metur nú næstu skref með hliðsjón af niðurstöðunni.

Þrjú þeirra sem misstu starf sitt í hópuppsögninni árið 2020 hafa leitað til BHM í kjölfar frétta af dómnum. Bandalagið er í reglulegu sambandi við þau og mun í vikunni senda SÍ erindi vegna málsins og óska eftir afstöðu stofnunarinnar. BHM stefnir að því að semja um bætur að tiltekinni fjárhæð fyrir hvert þeirra. Náist ekki samkomulag mun bandalagið fela sérfræðingum að annast frekari viðræður við stofnunina.

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt