Morgunverðarfundur BHM: Markmiðadrifið hagkerfi

BHM stendur fyrir morgunverðarfundi fimmtudaginn 30. apríl kl. 8.30–10.30 í Norræna húsinu undir yfirskriftinni Markmiðadrifið hagkerfi. Hvernig tengjast menntun, framleiðni og verðmætasköpun í íslensku hagkerfi?

Með fundinum vill BHM skapa vettvang til að dýpka samtalið um rannsóknir, menntun og tengsl við atvinnulíf og ræða hvort markmiðin séu skýr – og hvort þau endurspeglist í fjármögnun, hvötum og forgangsröðun.

Á fundinum verður sjónum beint að samspili opinberrar stefnu, háskólasamfélags og atvinnulífs og hvort núverandi umgjörð styðji við þá framtíðarsýn að byggja hagvöxt á þekkingu, sérhæfingu og nýsköpun.

Hagfræðingar BHM fjalla um þróun framleiðni og hagvaxtar og einnig verður rætt um hlutverk háskólasamfélagsins í verðmætasköpun.

Að lokum fara fram pallborðsumræður fulltrúa háskóla, atvinnulífs og nýsköpunar.

Fundurinn er opinn öllum, og hvetur BHM félagsfólk aðildarfélaga og hagaðila til að mæta og taka þátt í umræðunni um mikilvægar áskoranir og tækifæri fyrir íslenskt hagkerfi.

Nánari upplýsingar um dagskrá verður birt síðar— endilega takið daginn frá!

Skráning fer fram hér:

Morgunverðarfundur BHM 30. apríl: Markmiðadrifið hagkerfi

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Opnunartími síma þjónustuvers:
mán. til fim. 10:00 - 14:00
fös. 10:00 - 13:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt