Réttlát umskipti á vinnumarkaði - morgunverðarfundur

Hvaða áhrif hafa loftslagsbreytingar á störf og lífskjör launafólks og munu markmið stjórnvalda  um réttlát umskipti nást?

Í aðdraganda þríhliða fundar norrænna stjórnvalda og aðila vinnumarkaðar um réttlát umskipti, gangast BHM, BSRB og ASÍ fyrir sameiginlegum morgunverðarfundi í salnum VOX Club á Hótel Hilton Nordica, þriðjudaginn 14. nóvember kl. 08:30 – 10:00. Fundarstaðurinn opnar klukkan 08:00 með því að boðið verður upp á morgunverð.

Beint streymi verður af fundinum fyrir þau sem komast ekki á staðinn, dagskráin er birt hér að neðan.

Loftslagsbreytingar munu hafa víðtæk áhrif á samfélagið, efnahag, atvinnulíf og vinnumarkað. Það hver áhrif breytinganna verða er undir því komið hvaða stefna verður mörkuð og hvort tryggt verði að aðgerðir í baráttunni gegn loftslagsbreytingum séu samræmdar markmiðum um starfs- og afkomuöryggi og góð lífskjör.

Á fundinum verður fjallað um hugmyndafræðina sem réttlát umskipti byggja á og hvaða þýðingu þau hafa fyrir íslenskt samfélag, vinnumarkað, efnahag og velferð launafólks. Leitast verður við að varpa ljósi á núverandi stefnu og aðgerðir stjórnvalda í þágu réttlátra umskipta og hvað uppá vantar til að sett markmið náist .

Dagskrá:

08:30 - 08:45 - Réttlæti sem forsenda virkrar samstöðu – Halldór Þorgeirsson, formaður Loftslagsráðs

08:45 - 09:05: Hvaða þýðingu hafa réttlát umskipti fyrir vinnumarkað og lífskjör? – Auður Alfa Ólafsdóttir, sérfræðingur í umhverfis- og neytendamálum hjá ASÍ

09:05 - 09:15: Réttlát stefnumótun, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir – hagfræðingur hjá BSRB

09:15 - 09:25: Grænir kjarasamningar, Kolbrún Halldórsdóttir – formaður BHM

09:25 - 10:00: Pallborð: Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB og Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM, Auður Önnu Magnúsdóttir, fráfarandi framkvæmdastjóri Landverndar stýrir pallborði.

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Opnunartími þjónustuvers:
mán. til fim. 9:00 - 15:00,
fös. 9:00 - 13:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00,
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt