Trún­að­ar­manna­nám­skeið BHM

BHM býður trúnaðarmönnum aðildarfélaga sinna rafræn námskeið á Mínum síðum um hlutverk og störf trúnaðarmanna.

BHM býður trúnaðarmönnum upp á rafræn námskeið á Mínum síðum, undir flipanum Viðburðir og námskeið.

Þar eru stutt myndbönd, flokkuð eftir efni, þar sem farið er yfir hlutverk trúnaðarmanna og það sem þeir þurfa að kunna skil á. Með myndböndunum fylgir ítarefni sem hægt er að prenta út og gagnlegir tenglar.

Samkvæmt kjarasamningum eiga trúnaðarmenn í mörgum tilvikum rétt á að sækja námskeið án skerðingar á launum. Sjá Réttindi trúnaðarmanna.

Fræðsludagskrá BHM

Trúnaðarmönnum er bent á að fylgjast reglulega með fræðsludagskrá BHM, bæði fyrir sjálfa sig og til að miðla til annarra á vinnustaðnum.

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt