Er­lent sam­starf

Erlent samstarf veitir BHM mikilvæga innsýn í þróun vinnumarkaðar, réttindamála og samfélagslegra áskorana sem varða háskólamenntað fólk. Þótt viðfangsefnin séu ólík eftir heimshlutum eru snertifletirnir margir. Nægir þar að nefna jafnrétti og jafna meðferð á vinnumarkaði, stafræna umbreytingu, umhverfis- og loftslagsmál, viðbúnað vegna ytri og innri ógna og áhrif gervigreindar á störf, starfsumhverfi og réttindi launafólks.

Samstarfið hvílir á nokkrum stoðum sem styðja hver aðra.

Á norrænum vettvangi tekur BHM þátt í starfi Norræna verkalýðssambandsins (NFS), samstarfsvettvangs norrænna heildarsamtaka launafólks, sem mótar sameiginlega norræna sýn á þróun vinnumarkaðarins.

Auk BHM eiga ASÍ og BSRB aðild að NFS, sem styrkir samstöðu íslenskrar verkalýðshreyfingar á þeim vettvangi. Þá á BHM náið samstarf við systursamtök háskólafólks á Norðurlöndum: Akademikerne (AC) í Danmörku, Akademikerne í Noregi, Saco í Svíþjóð og Akava í Finnlandi.

Á evrópskum vettvangi á BHM aðild að Evrópusambandi verkalýðsfélaga (ETUC) og hefur þannig beina aðkomu að stefnumótun gagnvart stofnunum Evrópusambandsins.

Á alþjóðlegum vettvangi fylgist BHM jafnframt með starfi Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO), sérstofnunar Sameinuðu þjóðanna sem fjallar um grundvallarréttindi launafólks, kjarasamninga og félagsleg réttindi.

Saman tryggja þessar stoðir BHM yfirsýn, tengsl og tímanlega aðkomu að málum sem varða félagsfólk aðildarfélaganna.

Norræna verkalýðssambandið (NFS)

BHM á aðild að Norræna verkalýðssambandinu (Nordens Fackliga Samorganisation, NFS). Aðildarsamtökin eru 15 talsins og fara sameiginlega með hagsmuni rúmlega 8,5 milljóna launafólks í Danmörku, Finnlandi, Færeyjum, Grænlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð. Innan NFS starfa heildarsamtök verkafólks, skrifstofu- og þjónustufólks og háskólamenntaðra sérfræðinga.

Meginhlutverk NFS er að efla samstarf norrænna stéttarfélaga, samræma hagsmunagæslu þeirra og standa vörð um norræna vinnumarkaðslíkanið, einkum sjálfstæði aðila vinnumarkaðarins og samningsrétt þeirra. Starfið tekur til Norðurlanda, Eystrasaltssvæðisins, Evrópu og alþjóðlegra stofnana. Meðal helstu áherslumála eru sjálfbært atvinnulíf, velferðar- og menntamál, atvinnuöryggi, jafnrétti, frjáls för launafólks og réttlát umskipti vegna loftslags- og tæknibreytinga.

NFS gegnir jafnframt mikilvægu hlutverki við að samræma afstöðu norrænna heildarsamtaka gagnvart Evrópusambandinu og innan ETUC. Markmiðið er meðal annars að tryggja að evrópsk vinnumarkaðslöggjöf styrki réttindi launafólks án þess að grafa undan sjálfstæði stéttarfélaga og norræna kjarasamningslíkaninu. NFS samræmir einnig tilnefningar Norðurlanda í trúnaðarstörf innan alþjóðasamtaka launafólks og stofnana á borð við ILO og OECD.

Aðild BHM að NFS skapar vettvang fyrir samstarf við norræn heildarsamtök háskólamenntaðs starfsfólks, miðlun þekkingar og sameiginlega hagsmunagæslu. Með þátttöku sinni getur BHM haft áhrif á norræna og evrópska stefnumótun í málaflokkum sem varða aðildarfélög bandalagsins, meðal annars þróun opinberrar þjónustu, menntun, starfsumhverfi sérfræðinga og réttindi launafólks.

Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM, á sæti í stjórn NFS.

Evrópusamstarf

Aðild BHM að ETUC veitir bandalaginu aðgang að stefnumótun og umræðu á vettvangi Evrópusambandsins og yfirsýn yfir starf framkvæmdastjórnar ESB og Evrópuþingsins að málum sem varða vinnumarkaðinn. Þetta skiptir félagsfólk aðildarfélaga BHM miklu, enda á verulegur hluti íslenskrar löggjafar um vinnumarkað, réttindi launafólks, jafnrétti og félagslega vernd rætur í regluverki ESB sem tekið hefur verið upp í íslenskan rétt á grundvelli EES-samningsins. BHM leitast því við að fylgjast með mótun nýrra reglna strax á fyrstu stigum, áður en þær eru teknar upp í EES-samninginn og innleiddar hér á landi.

Innan ETUC starfa jafnframt EUROCADRES, samtök fagfólks og stjórnenda í Evrópu. Samtökin eru sérstakur vettvangur þeirra hópa sem BHM stendur vörð um, háskólamenntaðra sérfræðinga og stjórnenda, og fjalla um mál sem snerta beint hagsmuni félagsfólks aðildarfélaga BHM, til dæmis viðurkenningu starfsréttinda milli landa, hreyfanleika menntaðs vinnuafls og réttindi starfsfólks við örar tæknibreytingar.

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt