Íbúðalán - ein stærsta fjárhagslega ákvörðunin
Kennari: Björn Berg Gunnarsson
miðvikudagur, 18. október 2023
Kl. 13:00 - 15:00
Húsnæði Akademias í Borgartúni 23, 2. hæð og á Zoom
Kennari: Björn Berg Gunnarsson
Það borgar sig að vanda til verka þegar við ráðumst í okkar stærstu fjárhagslegu ákvarðanir. Hjá mörgum getur íbúðalánið haft afgerandi áhrif á fjármál heimilisins en erfitt getur reynst að átta sig á hvað hentar best á hverjum tíma. Á námskeiðinu verður rætt um allt það helsta sem tengist íbúðalánum almennt og aðstæðum í dag.
Meðal þeirra spurninga sem svarað verður eru:
Námskeiðið hentar fólki á öllum aldri, sem hyggur á íbúðakaup eða hefur þegar tekið íbúðalán. Þátttakendur verða betur í stakk búnir til að taka upplýstar ákvarðanir um hvers kyns lán hentar þeim best á hverjum tíma.
Námskeiðið verður tekið upp og gert aðgengilegt í viku í kjölfarið á Mínum síðum BHM.