Námskeið hjá Opna háskólanum í HR

Starfsþróunarsetur BHM og Opni háskólinn í HR hafa gert samning þar sem félagsfólki Starfsþróunarseturs BHM sem hafa virka aðild að Starfsþróunarsetri BHM býðst að sækja valin námskeið hjá Opna háskólanum í HR.

Einstaklingi gefst færi á að sækja eitt námskeið sér að kostnaðarlausu. Námskeiðin sem um er að ræða eru valin þannig að sem flest geti nýtt sér þau til að efla sig í starfi.

Til þess að nálgast afsláttakóða þarf að skrá sig inn á „Mínar síður BHM“ og birtist hann félagsfólki Starfsþróunarseturs BHM undir Viðburðir og námskeið → Námskeið hjá Opna háskólanum → Afsláttarkóði.

Afsláttarkóðinn gildir aðeins á þau námskeið sem eru í hlekk (Námskeið í boði hjá Opna háskólanum í HR) hér fyrir neðan. Ef afsláttarkóðinn er notaður á fleiri en eitt námskeið er veittur sjálfkrafa styrkur fyrir þeim námskeiðum sem kemur til frádráttar á einstaklingsstyrk viðkomandi hjá Starfsþróunarsetrinu.

Öðrum en félagsfólki Starfsþróunarseturs BHM er með öllu óheimilt að nota afsláttarkóðann. Ef að afsláttarkóðinn er notaður af einstaklingi sem hefur ekki virka aðild að Starfsþróunarsetri BHM verður námskeiðsgjald innheimt með greiðsluseðli á viðkomandi einstakling.

Upplýsingar um aðild einstaklinga að Starfsþróunarsetri má nálgast hér. Einnig er hægt að kanna með innskráningu á „Mínar síður BHM“ undir „Iðgjöld“ hvort vinnuveitandi sé að greiða iðgjöld til Starfsþróunarseturs.

Skráning á námskeiðin sem í boði eru fara fram á síðu Opna háskólans HR hér. Athugið að viðkomandi þarf að vera búin að nálgast afsláttarkóða inn á „Mínum síðum BHM“ til þess að færa inn á skráningarsíðu Opna háskólans HR.

13. október 2026 - 31. maí 2027

Námskeið í boði hjá Opna háskólanum í HR

AFSKRÁNING

Afskráning skal berast til Opna háskólans í HR á netfangið opnihaskolinn@ru.is

BREYTING Á NÁMSKEIÐI

Opni háskólinn í HR áskilur sér rétt til þess að fella niður eða fresta námskeiðum ef óviðráðanlegar aðstæður koma upp.

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt