
Sigríður Þrúður Stefánsdóttir, mannauðsstjóri Kópavogsbæjar og Björg Kjartansdóttir, framkvæmdastjóri BHM.
Sigríður greindi frá því að árið 2023 hafi Kópavogsbær ákveðið að stíga ný skref í vinnu með veikindafjarvistir, þar sem í ljós kom að bæði vantaði samræmd gögn og að skráningarhætti stjórnenda bæri víða að. Tölfræðin sem lá fyrir var ekki nægilega samanburðarhæf og stjórnendur höfðu misjafna sýn á hvernig skrá ætti fjarvistir og fylgja þeim eftir.
Í kjölfarið hófst umfangsmikið uppbyggingarstarf þar sem samræmd skráning, betra utanumhald og markvissari eftirfylgni voru sett í forgrunn. Tekið var upp mælaborð mannauðs til að auka gagnsæi, Bradford kvarðinn var innleiddur til að greina skammtímaveikindi og umhyggjusamtöl urðu formlegt viðbragð við tíðum fjarvistum. Jafnframt var aukin áhersla lögð á stuðning við stjórnendur og fræðslu fyrir starfsfólk, auk þess sem boðin er þjónusta hjúkrunarfræðings vegna endurtekinna veikinda. Nýtt verklag um samskipti í kringum langtíma- og hlutaveikindi hefur einnig skilað sér í skýrari ferlum og betra utanumhaldi.
Sigríður Þrúður sagði þessa vinnu þegar hafa skilað sýnilegum árangri, sérstaklega hvað varðar skammtímafjarvistir, sem hafa víða lækkað verulega. Hún lagði þó áherslu á að stærsti ávinningurinn væri breytt viðhorf stjórnenda, betri samtalsmenning og aukin meðvitund um mikilvægi þess að fylgja fjarvistamálum markvisst eftir — bæði til að styðja starfsfólk og til að byggja upp heilbrigðan vinnustað.
BHM þakkar Sigríði Þrúði kærlega fyrir fræðandi og gagnlegt erindi.



