
Á myndinni eru frá vinstri: Maria Löfgren formaður AKAVA í Finnlandi, Kolbrún Halldórsdóttir formaður BHM, Lise Lyngsnes Randeberg formaður Akademikerne í Noregi, Tomas Kepler formaður Akademikerne í Danmörku, Sofia Rydgren Stale formaður Saco í Svíþjóð.
Á ráðstefnunni voru kynntar nýjar niðurstöður úr skýrslu Menon Economics um verðmæti rannsókna og leiðir til að efla hagnýtingu þeirra. Fulltrúar háskóla, nýsköpunarfyrirtækja, fjárfesta og stjórnmála ræddu meðal annars hvernig mætti brúa bilið milli vísindarannsókna og atvinnulífs og skapa betri skilyrði fyrir því að góðar hugmyndir þróist yfir í sjálfbær fyrirtæki og starfsemi.
Sameiginleg yfirlýsing norrænna samtaka háskólafólks
Í tengslum við ráðstefnuna funduðu formenn norrænu heildarsamtakanna og samþykktu sameiginlega yfirlýsingu þar sem stjórnvöld á Norðurlöndum eru hvött til að efla rannsóknir og rannsóknatengda nýsköpun. Í yfirlýsingunni eru sett fram fimm megináhersluatriði:
- Viðhalda langtímafjárfestingu í framúrskarandi rannsóknum: Tryggja þarf stöðuga fjárfestingu í öflugum rannsóknum og rannsóknarinnviðum, skapa eftirsóknarverð starfsumhverfi og starfsferla fyrir vísindafólk og standa jafnframt vörð um akademískt frelsi.
- Meta reynslu af nýsköpun og auðvelda flæði þekkingar: Viðurkenna þarf reynslu af nýsköpun og frumkvöðlastarfi og draga úr óþarfa hindrunum á hreyfanleika fólks milli háskóla- og rannsóknarumhverfis og annarra geira samfélagsins.
- Brúa þarf fjármögnunar- og færnibilið frá rannsóknum til vaxtar: Laða þarf meira einkafjármagn að rannsóknatengdri nýsköpun og beina opinberri fjármögnun með markvissum hætti að verkefnum sem eru að þróast frá rannsóknarstigi yfir í vöxt og markaðssókn.
- Bæta aðgengi þvert á landamæri Norðurlandanna: Auðvelda þarf aðgang að norrænum rannsóknarinnviðum, sérfræðiþekkingu, prófunaraðstöðu og mörkuðum fyrir nýjar lausnir.
- Efla norræna samhæfingu og tengsl við evrópskar áætlanir: Tryggja þarf skilvirka tengingu milli innlendra og evrópskra fjármögnunarleiða og annarra stjórntækja á sviði rannsókna og nýsköpunar.
Með öflugra norrænu umhverfi fyrir rannsóknatengda nýsköpun má auka bæði efnahagslegt og samfélagslegt verðmæti fjárfestingar í rannsóknum og menntun. Jafnframt skapast fjölbreyttari atvinnutækifæri og betri skilyrði fyrir þróun og vöxt þekkingardrifinna lausna og fyrirtækja á Norðurlöndum og í Evrópu.
Mikilvægt að háskólamenntað fólk leiði breytingarnar
Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM, tók þátt í pallborðsumræðum í lok ráðstefnunnar þar sem hún lagði áherslu á að sjónarmið og hagsmunir háskólamenntaðs fólks þurfi að vera leiðandi við mótun rannsóknar- og nýsköpunarstefnu. Jafnframt verði ávallt að hafa sjálfbærni að leiðarljósi, enda sé hún ein af undirstöðum hagvaxtar og verðmætasköpunar til framtíðar.
Það er gríðarlega mikilvægt fyrir BHM að taka þátt í þessu norræna samstarfi. Háskólamenntaðir sérfræðingar eru í fremstu röð við að skapa nýja þekkingu og þróa lausnir við þeim viðfangsefnum sem samfélagið stendur frammi fyrir. Við þurfum að tryggja starfsumhverfi sem styður við rannsóknir, frumkvæði og nýsköpun og skapa raunhæfar leiðir til að koma góðum hugmyndum í framkvæmd. Það er bæði mikilvægt fyrir háskólafólk og samfélagið í heild.
BHM mun áfram fylgja þeim áherslum sem fram komu á ráðstefnunni og leggja sitt af mörkum til að efla rannsóknir, nýsköpun og hagnýtingu þekkingar í íslensku samfélagi.


