Orlofssjóður BHM opnar fyrir umsóknir í orlofskosti sjóðsins kl. 12:00 þriðjudaginn 27. febrúar. Hægt verður að sækja um í sjóðinn til kl. 23:59 mánudaginn 4. mars. Þann 5. mars fer fram úthlutun miðað við punktastöðu félagsmanns og hlutkesti. Þriðjudaginn 12. mars kl. 12:00 gefst félagsmönnum kostur á að sækja um orlofskosti sem ekki var úthlutað undir formerkjunum „Fyrstur kemur, fyrstur fær.“
Á orlofsvef OBHM má kynna sér hvaða orlofskostir standa félagsmönnum til boða.