Umsögn BHM um styttri lánstíma verðtryggðra fasteignalána

BHM hefur skilað umsögn í samráðsgátt stjórnvalda (mál nr. S-230/2026) um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fasteignalán til neytenda. Samkvæmt frumvarpsdrögunum verður hámarkslánstími verðtryggðra fasteignalána að meginreglu 25 ár frá 1. mars 2027.

BHM tekur undir markmið um að draga úr vægi verðtryggingar og verðbólguáhættu heimila en styður ekki frumvarpsdrögin óbreytt. Við núverandi vaxtastig eru óverðtryggð lán ekki raunhæfur kostur fyrir mörg heimili. Því er líklegt að hámarkið leiði einkum til styttri verðtryggðra lána með hærri greiðslubyrði frekar en til þess að fleiri taki óverðtryggð lán.

Áhrifin dreifast ójafnt. Samkvæmt greinargerð frumvarpsins er fyrsta greiðsla af 25 ára verðtryggðu jafngreiðsluláni um fjórðungi hærri en af sambærilegu 40 ára láni. Breytingin bitnar einkum á heimilum sem þurfa nýja lánsfjármögnun, og tekjulægri lántakar hafa frekar valið löng verðtryggð lán. BHM telur að meta þurfi betur áhrifin á barnafjölskyldur, einstæða foreldra, fólk með námslán og fólk sem hefur lítinn fjárhagslegan stuðning að baki sér.

Raunhæfir valkostir þurfa að koma fyrst

BHM leggur áherslu á að frumvarpið verði metið í samhengi við vinnu starfshóps um nýtt húsnæðislánakerfi, sem bandalagið á aðild að. Fyrst þarf að efla raunhæfa valkosti, svo sem óverðtryggð lán með lengri vaxtabindingu, aukið íbúðaframboð og traustari leigumarkað. Eftir það má takmarka lengstu verðtryggðu lánin. Að mati BHM ætti hámarkið ekki að taka gildi fyrr en verðbólga hefur nálgast markmið Seðlabankans og hagstæðari lánakostir standa til boða. Þegar verðbólga hjaðnar minnkar munurinn á greiðslubyrði verðtryggðra og óverðtryggðra lána og þá er líklegra að hámarkið færi lántöku yfir í óverðtryggð lán.

Gagnsæi, vernd og endurmat

Samkvæmt frumvarpsdrögunum mega lánveitendur veita lán utan meginreglunnar fyrir allt að 10% af fjárhæð lánveitinga sinna á undangengnum ársfjórðungi. BHM kallar eftir gagnsæjum og málefnalegum viðmiðum um hvernig því svigrúmi er ráðstafað og að birtar verði upplýsingar um hvaða hópar njóta þess.

BHM telur jafnframt að undanþága vegna greiðsluerfiðleika eigi að ná til 25 ára hámarksins. Þá þurfi að skýra undanþágu vegna endurfjármögnunar og tryggja að reglurnar torveldi ekki hagkvæma endurfjármögnun eða húsnæðisskipti. Verði frumvarpið að lögum þurfi að endurmeta áhrif þess innan tveggja ára.

Umsögn BHM má lesa í heild sinni í samráðsgáttinni.

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt