Kosn­ing trún­að­ar­manns

Trúnaðarmaður er kosinn af félagsmönnum á vinnustaðnum eða tilnefndur af stéttarfélaginu, til tveggja ára í senn. Reglur um fjölda og tilkynningu eru ólíkar eftir vinnumarkaði.

Trúnaðarmaður er kosinn til tveggja ára í senn. Lög mæla ekki fyrir um hvernig kosning skuli fara fram og getur framkvæmdin verið misjöfn eftir stéttarfélögum. Yfirleitt sér fráfarandi trúnaðarmaður um kosningu eftirmanns síns í samráði við stéttarfélagið.

Hjá ríki og sveitarfélögum

Samkvæmt 28. gr. laga nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna:

  • á hverjum vinnustað þar sem a.m.k. fimm starfa er starfsfólki heimilt að kjósa úr sínum hópi einn trúnaðarmann,
  • á vinnustað þar sem fimmtíu eða fleiri starfa má kjósa tvo trúnaðarmenn,
  • trúnaðarmenn skal kjósa til tveggja ára í senn.

Í kjarasamningum og samkomulögum um trúnaðarmenn eru nánari reglur. Þar er til dæmis heimilað að kjósa trúnaðarmann fyrir fleiri en einn minni vinnustað og kveðið á um að kosning skuli tilkynnt vinnuveitanda.

Á almennum vinnumarkaði

Samkvæmt 9. gr. laga nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur hefur stéttarfélag rétt til að tilnefna trúnaðarmann á hverjum vinnustað þar sem a.m.k. fimm starfa.

Í kjarasamningi Samtaka atvinnulífsins og aðildarfélaga BHM er nánar kveðið á um að:

  • félagsmönnum sé heimilt að kjósa einn trúnaðarmann á hverjum vinnustað þar sem a.m.k. fimm félagsmenn starfa, og tvo þar sem starfsfólk er fleira en fimmtíu,
  • stéttarfélagið tilnefni trúnaðarmann að lokinni kosningu og tilkynni vinnuveitanda það skriflega,
  • trúnaðarmenn séu ekki kosnir eða tilnefndir til lengri tíma en tveggja ára í senn.

Hvers vegna skiptir tilkynning máli?

Trúnaðarmaður nýtur réttinda og verndar sem slíkur þegar hann hefur verið löglega kosinn eða tilnefndur og það hefur verið tilkynnt stéttarfélagi og vinnuveitanda. Notaðu eyðublöðin hér að neðan og gættu þess að tilkynningin berist bæði stéttarfélaginu og vinnuveitandanum.

Kjörtímabil er tvö ár. Ef ekki er kosið að nýju að því loknu getur trúnaðarmaður misst þá vernd og þau réttindi sem staðan veitir. Sjá Vernd trúnaðarmanna.

Hafðu samband við þitt stéttarfélag til að fá nánari upplýsingar um kosningu.

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt