Vernd trún­að­ar­manna

Óheimilt er að segja trúnaðarmanni upp vegna trúnaðarstarfa eða láta hann gjalda þeirra á annan hátt. Við fækkun starfsfólks skal trúnaðarmaður að öðru jöfnu sitja fyrir um að halda starfinu.

Vernd trúnaðarmanna er hornsteinn reglnanna um trúnaðarmenn. Henni er ætlað að tryggja að trúnaðarmaður geti sinnt trúnaðarstörfum, til dæmis bent á brot á kjarasamningi, án þess að eiga á hættu að missa starfið.

Hvaða vernd nýtur trúnaðarmaður?

Á almennum vinnumarkaði er samkvæmt 11. gr. laga nr. 80/1938 óheimilt að segja trúnaðarmanni upp vegna starfa hans sem trúnaðarmanns eða láta hann á annan hátt gjalda þess að stéttarfélag hefur falið honum trúnaðarstörf. Þurfi atvinnurekandi að fækka starfsfólki skal trúnaðarmaður að öðru jöfnu sitja fyrir um að halda vinnunni.

Hjá ríki og sveitarfélögum segir í 30. gr. laga nr. 94/1986 að trúnaðarmaður skuli í engu gjalda þess í starfi eða á annan hátt að hann hafi valist til trúnaðarstarfa. Óheimilt er að flytja trúnaðarmann í lægri launaflokk meðan hann gegnir starfinu og hann skal að öðru jöfnu sitja fyrir um að halda vinnunni. Samsvarandi ákvæði eru í kjarasamningum.

Er verndin fortakslaus?

Nei. Verndin tekur til trúnaðarstarfanna. Brjóti trúnaðarmaður af sér í starfi eða vanræki það er hann í sömu stöðu gagnvart vinnuveitanda og annað starfsfólk.

Verndin er jafnframt bundin við að trúnaðarmaður hafi verið löglega kosinn eða tilnefndur og að það hafi verið tilkynnt. Kjörtímabil er tvö ár og því þarf að endurnýja kosningu reglulega. Sjá Kosning trúnaðarmanns.

Hvað hafa dómstólar sagt?

  • Félagsdómur í máli nr. 6/2022 (dómur 3. janúar 2023): Trúnaðarmanni var sagt upp í tengslum við hópuppsögn vegna skipulagsbreytinga. Félagsdómur taldi að 11. gr. laga nr. 80/1938 gerði ráð fyrir að trúnaðarmaður héldi starfi sínu við fækkun starfsfólks, nema ríkar ástæður stæðu til annars. Þar sem helstu verkefni trúnaðarmannsins voru áfram til staðar hafði vinnuveitandinn ekki sýnt fram á nægar ástæður og uppsögnin var dæmd ólögmæt.
  • Hæstiréttur í máli nr. 75/2014 (dómur 25. september 2014): Í máli trúnaðarmanns hjá opinberri stofnun taldi Hæstiréttur að í ljósi ríkrar verndar trúnaðarmannsins hefði stofnuninni borið að kanna hvort komast mætti hjá uppsögn hans.
  • Hæstiréttur í máli nr. 12/2022 (dómur 9. mars 2022): Ágreiningur um hvort trúnaðarmaður hafi notið verndar 11. gr. laga nr. 80/1938 við uppsögn fellur undir lögsögu Félagsdóms.

Önnur sérstök uppsagnarvernd

Öryggistrúnaðarmenn njóta einnig verndar gegn uppsögn samkvæmt lögum nr. 46/1980. Um þá vernd og aðra sérstaka uppsagnarvernd, til dæmis við aðilaskipti að fyrirtækjum, sjá Uppsagnarvernd.

Hvað get ég gert?

Ef þú ert trúnaðarmaður og telur að þér hafi verið sagt upp eða þú beittur órétti vegna trúnaðarstarfa skaltu hafa samband við þitt stéttarfélag án tafar. Stéttarfélagið getur mótmælt uppsögninni og eftir atvikum borið málið undir Félagsdóm.

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt