Réttindi starfsfólks byggjast á lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og almennu persónuverndarreglugerðinni (ESB) 2016/679. Þau gilda á öllum stigum ráðningarsambandsins og eftir að því lýkur.
Réttur til upplýsinga
Vinnuveitandi á að upplýsa starfsfólk um:
- hvaða upplýsingar eru unnar og í hvaða tilgangi,
- á hvaða grundvelli vinnslan byggist,
- hverjir fá aðgang að upplýsingunum,
- hve lengi þær eru varðveittar,
- réttindi starfsfólks og hvernig það getur nýtt þau.
Hvernig fæ ég aðgang að upplýsingum um mig?
Starfsfólk á rétt á staðfestingu á því hvort vinnuveitandi vinni með persónuupplýsingar um það og, ef svo er, aðgangi að upplýsingunum og afriti af þeim (15. gr. reglugerðarinnar). Aðgangsrétturinn getur til dæmis nýst þegar starfsfólk vill sjá hvað hefur verið skráð um það í tengslum við frammistöðumat, áminningu eða ágreining.
Vinnuveitandi á að svara beiðni án ótilhlýðilegrar tafar og í síðasta lagi innan eins mánaðar. Fresturinn getur lengst um tvo mánuði ef beiðni er flókin eða beiðnir margar, en þá á vinnuveitandi að tilkynna um framlenginguna og ástæður hennar innan mánaðar.
Getur vinnuveitandi takmarkað aðgang?
Já, í tilteknum tilvikum. Samkvæmt 17. gr. laga nr. 90/2018 getur aðgangsréttur meðal annars vikið ef brýnir hagsmunir annarra, þar á meðal annars starfsfólks, vega þyngra. Þá er heimilt að undanþiggja persónuupplýsingar í vinnuskjölum sem notuð eru við undirbúning ákvarðana, að því marki sem nauðsynlegt er til að tryggja undirbúning málsmeðferðar. Takmarkanir verða að vera í samræmi við meðalhóf og vinnuveitandi á að rökstyðja synjun.
Hjá opinberum aðilum getur starfsfólk einnig átt rétt á aðgangi að gögnum sem aðili máls samkvæmt stjórnsýslulögum, til dæmis þegar tekin er ákvörðun um áminningu eða uppsögn.
Réttur til leiðréttingar
Starfsfólk á rétt á að fá rangar eða ófullkomnar persónuupplýsingar um sig leiðréttar án ótilhlýðilegrar tafar, til dæmis rangar launaupplýsingar eða misritaðar upplýsingar í frammistöðumati.
Réttur til eyðingar
Starfsfólk getur farið fram á að upplýsingum sé eytt, til dæmis ef þeirra er ekki lengur þörf, ef vinnslan byggðist á samþykki sem hefur verið afturkallað eða ef vinnslan er ólögmæt. Rétturinn gildir þó ekki ef vinnuveitanda er skylt að varðveita upplýsingarnar, til dæmis samkvæmt bókhaldslögum eða lögum um opinber skjalasöfn, eða ef þær eru nauðsynlegar vegna réttarkrafna.
Réttur til takmörkunar á vinnslu
Starfsfólk getur farið fram á að vinnsla sé takmörkuð, til dæmis á meðan leyst er úr ágreiningi um hvort upplýsingar séu réttar eða hvort andmæli eigi rétt á sér. Upplýsingarnar má þá að jafnaði aðeins varðveita en ekki nota.
Andmælaréttur
Starfsfólk getur andmælt vinnslu sem byggist á lögmætum hagsmunum vinnuveitanda eða á verkefni í þágu almannahagsmuna. Vinnuveitandi verður þá að hætta vinnslunni nema hann sýni fram á mikilvægar lögmætar ástæður sem vega þyngra en hagsmunir starfsmannsins, eða að vinnslan sé nauðsynleg vegna réttarkrafna.
Réttur til að flytja eigin gögn
Ef vinnsla byggist á samþykki eða samningi og fer fram með sjálfvirkum hætti á starfsfólk rétt á að fá upplýsingarnar afhentar á algengu og tölvulesanlegu sniði.
Sjálfvirkar ákvarðanir
Starfsfólk og umsækjendur eiga rétt á að sæta ekki ákvörðun sem byggist eingöngu á sjálfvirkri vinnslu, þar með talið gerð persónusniðs, ef hún hefur réttaráhrif eða snertir þá að verulegu leyti með sambærilegum hætti (22. gr. reglugerðarinnar). Þetta getur til dæmis átt við um sjálfvirkt mat á umsækjendum eða frammistöðu. Þegar slík vinnsla er heimil á starfsfólk rétt á mannlegri aðkomu, á að geta komið sjónarmiðum sínum á framfæri og andmælt ákvörðuninni.
Hvernig nýti ég réttindin?
Sendu skriflega beiðni til vinnuveitanda eða persónuverndarfulltrúa hans og tilgreindu hvaða réttindi þú vilt nýta. Afgreiðsla beiðninnar á að jafnaði að vera þér að kostnaðarlausu.
Ef vinnuveitandi verður ekki við beiðninni eða þú telur vinnslu ólögmæta getur þú sent kvörtun til Persónuverndar. Persónuvernd getur meðal annars lagt fyrir vinnuveitanda að bæta úr og lagt á stjórnvaldssektir.
Á ég rétt á bótum?
Hver sá sem hefur orðið fyrir tjóni vegna brots á persónuverndarreglum á rétt á bótum frá ábyrgðaraðila (82. gr. reglugerðarinnar og 51. gr. laga nr. 90/2018). Brot eitt og sér veitir ekki rétt til bóta heldur þarf að sýna fram á tjón og orsakatengsl. Leitaðu ráðgjafar hjá þínu stéttarfélagi ef þú telur að slík staða sé uppi.