Eft­ir­lit og rafræn vökt­un

Vinnuveitandi má aðeins viðhafa rafræna vöktun í málefnalegum tilgangi og að gættu meðalhófi. Starfsfólk á að vita af vöktuninni og hvernig farið er með upplýsingarnar.

Vinnuveitandi hefur hagsmuni af því að tryggja öryggi og fylgjast með því að starfsemi gangi eðlilega fyrir sig. Eftirlit með starfsfólki skerðir hins vegar friðhelgi einkalífs og verður því að uppfylla skilyrði persónuverndarlöggjafar.

Hvað er rafræn vöktun?

Samkvæmt lögum nr. 90/2018 er rafræn vöktun vöktun sem er viðvarandi eða endurtekin reglulega og felur í sér eftirlit með einstaklingum með fjarstýrðum eða sjálfvirkum búnaði og fer fram á almannafæri eða á svæði sem takmarkaður hópur fólks fer um að jafnaði. Vinnustaðir falla undir síðarnefnda flokkinn. Dæmi eru eftirlitsmyndavélar og annar sjálfvirkur búnaður sem notaður er til að fylgjast með fólki.

Hvenær er rafræn vöktun heimil?

Samkvæmt 14. gr. laganna:

  • verður rafræn vöktun ávallt að fara fram í málefnalegum tilgangi,
  • er vöktun svæðis sem takmarkaður hópur fólks fer um, svo sem vinnustaðar, jafnframt háð því að hennar sé sérstök þörf vegna eðlis starfseminnar,
  • skal á vinnustað vekja athygli á vöktuninni með áberandi hætti og tilgreina hver ber ábyrgð á henni,
  • skal eyða efni sem verður til við vöktunina þegar málefnaleg ástæða til að varðveita það er ekki lengur fyrir hendi.

Nánari reglur eru í reglum Persónuverndar nr. 50/2023 um rafræna vöktun, með síðari breytingum. Þar er meðal annars kveðið á um fræðslu til þeirra sem sæta vöktun, aðgang að efni og varðveislutíma. Meginreglan samkvæmt 11. gr. reglnanna er að efni sem verður til við rafræna vöktun megi ekki varðveita lengur en 30 daga, nema sérstakar ástæður réttlæti lengri varðveislu.

Vinnuveitandi á að hafa skriflegar reglur um vöktunina og kynna þær starfsfólki áður en hún hefst. Starfsfólk á að vita hvar vöktun fer fram, í hvaða tilgangi og hver hefur aðgang að efninu.

Eftirlitsmyndavélar

Myndavélavöktun á vinnustað er einkum réttlætanleg í öryggis- og eignavörsluskyni. Hún má ekki ganga lengra en nauðsynlegt er og ekki beinast að svæðum þar sem starfsfólk á réttmæta von um næði, svo sem búningsklefum og salernum. Persónuvernd hefur gefið út leiðbeiningar um eftirlitsmyndavélar á vinnustöðum.

Má vinnuveitandi skoða tölvupóstinn minn?

Í reglum nr. 50/2023 er ekki lengur sérstakt ákvæði um tölvupóst og netnotkun. Í staðinn hefur Persónuvernd gefið út leiðbeiningar um meðferð tölvupósts, skráasvæða og eftirlit með netnotkun. Þær fjalla um það sem gæta þarf að við upphaf starfs, skoðun tölvupósts og skráasvæða meðan á starfi stendur og meðferð pósthólfa og skráasvæða við og eftir starfslok. Leiðbeiningarnar eru ekki bindandi reglur en Persónuvernd byggir á þeim við mat sitt.

Af almennum reglum leiðir meðal annars að:

  • vinnuveitandi á að setja skýrar reglur um notkun tölvupósts og netnotkun og kynna þær starfsfólki,
  • skoðun tölvupósts verður að vera í málefnalegum tilgangi og ganga ekki lengra en nauðsynlegt er,
  • greina ber á milli vinnupósts og einkapósts.

Staðsetningarbúnaður og ökuritar

Notkun staðsetningarbúnaðar og ökurita í ökutækjum eða snjalltækjum felur í sér vinnslu persónuupplýsinga um starfsfólk. Hún verður að hafa skýran og málefnalegan tilgang, til dæmis vegna öryggis eða skipulags verkefna, starfsfólk á að fá fræðslu um hana og almennt ætti ekki að fylgjast með staðsetningu utan vinnutíma.

Hvað segir Mannréttindadómstóll Evrópu?

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um eftirlit vinnuveitenda í ljósi 8. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs:

  • Í máli Bărbulescu gegn Rúmeníu (yfirdeild, mál nr. 61496/08, 5. september 2017) hafði vinnuveitandi fylgst með og lesið samskipti starfsmanns í spjallforriti. Dómstóllinn taldi að landsyfirvöld hefðu ekki verndað rétt starfsmannsins til friðhelgi einkalífs og bréfaskipta með fullnægjandi hætti.
  • Í máli López Ribalda o.fl. gegn Spáni (yfirdeild, mál nr. 1874/13 og 8567/13, 17. október 2019) hafði vinnuveitandi komið fyrir földum myndavélum vegna rökstudds gruns um verulegan þjófnað. Dómstóllinn taldi að 8. gr. hefði ekki verið brotin í því tilviki.

Dómarnir sýna að meta þarf í hverju tilviki hvort eftirlit sé nauðsynlegt og í réttu hlutfalli við tilefnið, og að leynilegt eftirlit getur aðeins komið til álita í undantekningartilvikum.

Hvað get ég gert?

Ef þú telur að eftirlit á vinnustað fari í bága við reglur getur þú óskað eftir upplýsingum um vöktunina og andmælt henni hjá vinnuveitanda eða persónuverndarfulltrúa. Þú getur einnig leitað til þíns stéttarfélags og sent kvörtun til Persónuverndar. Sjá einnig um réttindi starfsfólks.

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt