Skip to content

Örugg tjáning í rafheimum og raunheimum

Kennari: Sirrý Arnardóttir

mánudagur, 16. október 2023
Kl. 13:00 - 16:00
Húsnæði Tannlæknafélagsins Síðumúla 35, 2. hæð

Námskeiðið verður haldið í húsnæði Tannlæknafélagsins í Síðumúla 35, 2. hæð. Vinsamlegast athugið að ekki er lyfta í húsinu.

Hagnýtur fyrirlestur um örugga tjáningu á fundum, ræðupúlti, málstofum hvort sem er í raunheimum eða á Teams/Zoom.

Rætt um í fyrirlestri og hópverkefnum:

  • Að kynna sig/fyrirtæki/málefni á árangursríkan hátt
  • Að virkja hópinn
  • Að takast á við neikvæða strauma
  • Að nýta sér sviðsskrekk
  • Skotheld aðferð við að undirbúa ,,óundirbúna ræðu”.
  • Hvað þarf helst að hafa í huga í rafheimum? Hvað virkar vel/illa.

Sirrý Arnardóttir er stjórnendaþjálfari, fjölmiðlakona, rithöfundur og kennari við Háskólann á Bifröst.

www.sirry.is

Takmarkað pláss er á námskeiðið sem verður haldið í sal Tannlæknafélagsins í Síðumúla 35. Vinsamlegast athugið að námskeiðið verður ekki tekið upp.