Skip to content

Virkjum stressið og nýtum kraftinn

Fyrirlesari: Eyþór Eðvarðsson, M.A. í vinnusálfræði, þjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun ehf.

miðvikudagur, 12. apríl 2023
Kl. 11:00 - 12:00
Borgartúni 6, 4. hæð og á Teams

Nýjustu rannsóknir á streituviðbragðinu sýna að við höfum stórlega vanmeti þau miklu jákvæðu áhrif sem streita getur haft á okkur.

Í metsölubókinni The Upside of Stress eftir heilsusálfræðinginn PhD Kelly McGonigal við Stanford háskóla eru teknar saman fjölmargar rannsóknir sem varpa ljósi á eðli streitunnar og hvernig hægt er að virkja hana til góðra verka. Það hvernig við hugsum skiptir mestu því kraftur hugans er mikill. Sem dæmi þá eru þeir sem trúa því að streita sé slæm líklegir til að upplifa neikvæðar afleiðingar af þessu kröftuga viðbragði. Þeir sem aftur á móti hafa tilgang í lífinu, hugsa um aðra og trúa því að streita sé góð eru í næstum engri hættu á streitutengdum vandamálum, jafnvel þó að aðstæður séu mjög streituvekjandi. Ekki nóg með það heldur styrkist hjarta- og æðakerfið og heilinn þroskast hraðar, góðmennska eykst, samvinna batnar og frammistaðan sömuleiðis.

Hugurinn hefur áhrif á líkamann og með einföldum hugarfarsaðferðum er hægt að virkja streituviðbragðið til stórra verka, enda viðbragðið með eindæmum aflmikið.

Í þessum magnaða fyrirlestri verður sagt frá næstum því ótrúlegum rannsóknum sem gerðar hafa verið og þar koma m.a. fram systkinin kortisól, oxýtosín, serótonín, adrenalín og útlenskur frænda þeirra DHEA. Nágranninn Ghrelin hungurhormónið kemur einnig við sögu.

Fyrirlesari er Eyþór Eðvarðsson, M.A. í vinnusálfræði, þjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun ehf.

Félagsfólk er velkomið í sal BHM í Borgartúni 6, 4. hæð. Fyrirlestrinum verður einnig streymt á Teams og verður hann tekinn upp og gerður aðgengilegur á Mínum síðum BHM í viku í kjölfarið.