Evr­ópu­sam­starf (ETUC)

Aðild BHM að ETUC veitir bandalaginu aðgang að stefnumótun og umræðu á vettvangi Evrópusambandsins og yfirsýn yfir starf framkvæmdastjórnar ESB og Evrópuþingsins að málum sem varða vinnumarkaðinn.

Þetta skiptir félagsfólk aðildarfélaga BHM miklu, enda á verulegur hluti íslenskrar löggjafar um vinnumarkað, réttindi launafólks, jafnrétti og félagslega vernd rætur í regluverki ESB sem tekið hefur verið upp í íslenskan rétt á grundvelli EES-samningsins. BHM leitast því við að fylgjast með mótun nýrra reglna strax á fyrstu stigum, áður en þær eru teknar upp í EES-samninginn og innleiddar hér á landi.

Innan ETUC starfa jafnframt EUROCADRES, samtök fagfólks og stjórnenda í Evrópu. Samtökin eru sérstakur vettvangur þeirra hópa sem BHM stendur vörð um, háskólamenntaðra sérfræðinga og stjórnenda, og fjalla um mál sem snerta beint hagsmuni félagsfólks aðildarfélaga BHM, til dæmis viðurkenningu starfsréttinda milli landa, hreyfanleika menntaðs vinnuafls og réttindi starfsfólks við örar tæknibreytingar.

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt