Norræna verkalýðssambandið (NFS)
Meginhlutverk NFS er að efla samstarf norrænna stéttarfélaga, samræma hagsmunagæslu þeirra og standa vörð um norræna vinnumarkaðslíkanið, einkum sjálfstæði aðila vinnumarkaðarins og samningsrétt þeirra. Starfið tekur til Norðurlanda, Eystrasaltssvæðisins, Evrópu og alþjóðlegra stofnana. Meðal helstu áherslumála eru sjálfbært atvinnulíf, velferðar- og menntamál, atvinnuöryggi, jafnrétti, frjáls för launafólks og réttlát umskipti vegna loftslags- og tæknibreytinga.
NFS gegnir jafnframt mikilvægu hlutverki við að samræma afstöðu norrænna heildarsamtaka gagnvart Evrópusambandinu og innan ETUC. Markmiðið er meðal annars að tryggja að evrópsk vinnumarkaðslöggjöf styrki réttindi launafólks án þess að grafa undan sjálfstæði stéttarfélaga og norræna kjarasamningslíkaninu. NFS samræmir einnig tilnefningar Norðurlanda í trúnaðarstörf innan alþjóðasamtaka launafólks og stofnana á borð við ILO og OECD.
Aðild BHM að NFS skapar vettvang fyrir samstarf við norræn heildarsamtök háskólamenntaðs starfsfólks, miðlun þekkingar og sameiginlega hagsmunagæslu. Með þátttöku sinni getur BHM haft áhrif á norræna og evrópska stefnumótun í málaflokkum sem varða aðildarfélög bandalagsins, meðal annars þróun opinberrar þjónustu, menntun, starfsumhverfi sérfræðinga og réttindi launafólks.
Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM, á sæti í stjórn NFS.
