
Ófullnægjandi undirbúningur og skortur á samráði
Í umsögninni kemur fram að frumvarpið beri skýr merki þess að vera samið án raunverulegs samráðs við hagsmunaaðila. BHM telur að skort hafi á greiningu á því hvaða áhrif breytingarnar hafi á samningsfyrirkomulag og stöðu þeirra sérfræðinga sem starfa sjálfstætt innan heilbrigðiskerfisins.
Sjúkratryggingum veittar of víðtækar heimildir
BHM gerir alvarlegar athugasemdir við að Sjúkratryggingum Íslands séu veittar íþyngjandi heimildir til eftirlits og einhliða íhlutunar í rekstur þjónustuveitenda. Sérstaklega er gagnrýnt að stofnunin geti ákveðið gjaldskrár einhliða á tímabilum sem skilgreind eru sem „samningsleysi“, sem raski verulega jafnvægi milli samningsaðila og skapi ófyrirsjáanleika.
„Útfærsla frumvarpsins er óásættanleg og stenst ekki kröfur um vandaða lagasetningu, meðalhóf og fyrirsjáanleika,“ segir í umsögninni.
Atvinnufrelsi og persónuvernd í húfi
BHM styður jafnframt gagnrýni á kröfur um tiltekið rekstrarform án rökstuðnings, sem telst óþarfa íhlutun í atvinnufrelsi. Þá er varað við því að heimildir til gagnaöflunar gangi of langt, sem geti ógnað trúnaði og persónuvernd sjúklinga.
BHM mótmælir ekki meginmarkmiðum frumvarpsins, svo sem markmiðum um gagnsæi, samfellu í þjónustu og ábyrga ráðstöfun opinbers fjár. Útfærsla frumvarpsins er hins vegar óásættanleg og stenst ekki kröfur um vandaða lagasetningu, meðalhóf og fyrirsjáanleika.
BHM skorar á Alþingi að hefja nýtt samráðsferli og leggja fram nýtt frumvarp sem byggir á virðingu fyrir faglegu sjálfstæði og samningsfrelsi heilbrigðisstétta.
Tengdar færslur
27. október 2026Landspítali braut jafnréttislög við launasetningu sérfræðilæknis
23. október 2026BHM styður aukinn fyrirsjáanleika í leigu en gerir fyrirvara við þak á hækkanir
19. október 2026Vellíðan í vinnu er sameiginlegt verkefni
17. október 2026Landsréttur dæmir uppsögn hjá Sjúkratryggingum Íslands ólögmæta – BHM metur næstu skref
14. október 2026Hádegisfundur BHM og LÍS - Ungt fólk á bið: Námslán, húsnæði og leiðin til sjálfstæðis
8. október 2026Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin