Tíðindi í dómsmáli um skerðingu lífeyrisréttinda

Hæstiréttur telur ekki alla dómara Héraðsdóms Reykjavíkur vanhæfa til að fjalla um málið. Niðurstaðan ryður úr vegi hindrun sem hefur tafið meðferð mikilvægs hagsmunamáls fyrir félagsfólk BHM.

Mál vegna skerðingar lífeyrisréttinda sjóðfélaga í A-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins (LSR) getur nú haldið sína leið í réttarkerfinu eftir að Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að ekki væru allir dómarar Héraðsdóms Reykjavíkur vanhæfir til að fjalla um málið.

Málið hefur tafist vegna álitamála um hæfi dómara, þar sem dómarar við Héraðsdóm Reykjavíkur eru sjálfir sjóðfélagar í A-deild LSR. Landsréttur hafði komist að þeirri niðurstöðu að allir dómarar réttarins væru vanhæfir þar sem þeir gætu haft fjárhagslegra hagsmuna að gæta af niðurstöðu málsins.

Hæstiréttur hefur nú komist að annarri niðurstöðu hvað varðar hluta dómaranna. Rétturinn telur ekki sýnt að allir dómarar Héraðsdóms Reykjavíkur séu vanhæfir. Þar með ætti að vera unnt að halda meðferð málsins áfram og færa það nær efnislegri úrlausn.

Mikilvægt hagsmunamál fyrir aðildarfélög BHM

Málið á sér langan aðdraganda og tengist breytingum sem gerðar voru á lífeyriskerfi opinberra starfsmanna í tengslum við kjarasamninga árin 2016 og 2017. Þá var A-deild LSR færð úr kerfi skilgreindra réttinda yfir í kerfi skilgreindra iðgjalda. Árið 2023 voru síðan gerðar breytingar á réttindum sjóðfélaga í A-deildarinnar. Áunnin réttindi voru skert og jafnframt hægði á framtíðarávinnslu réttinda.

Í nóvember 2024 ákváðu BHM, BSRB, KÍ og Fíh að höfða mál gegn íslenska ríkinu vegna skerðinganna. Málið er rekið fyrir hönd ljósmóður og snýst meðal annars um hvort breytingarnar og skerðing réttinda árið 2023 hafi falið í sér ólögmæta skerðingu áunninna lífeyrisréttinda sem njóta verndar samkvæmt eignarréttarákvæði 72. gr. stjórnarskrárinnar.

Fram að þessu hefur málsmeðferðin tafist vegna álitamála í tengslum við vanhæfi dómaranna, en nú hefur Hæstiréttur kveðið upp þann dóm að ekki séu allir dómarar Héraðsdóms vanhæfir. Sú niðurstaða er mikilvægt skref í því að málið fái efnislega meðferð fyrir dómstólum.

Fyrri umfjöllun og nánari upplýsingar

· Skerðingar á lífeyrisréttindum opinberra starfsmanna – BHM

· Breytingar á LSR 2017 voru verulega gallauurðar og leiddu til mikils fjárhagslegs tjóns fyrir sjóðfélaga – BHM

· Dómararnir ekki allir vanhæfir að mati Hæstaréttar – RÚV

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt