Haustskýrsla kjaratölfræðinefndar 2026

Haustskýrsla kjaratölfræðinefndar (KTN) 2026 er komin út. Í henni er fjallað um kjarasamninga, launaþróun, vinnumarkað og efnahagsmál. Þar er einnig í fyrsta sinn greint frá launabreytingum umfram kjarasamningsbundnar hækkanir.

Núverandi kjarasamningslota hófst í mars 2024. Síðan hafa verið gerðir um 260 kjarasamningar sem ná til nær alls launafólks á almennum og opinberum vinnumarkaði. Almennt var samið til fjögurra ára og blandað saman krónutölu- og prósentuhækkunum. Forsenduákvæði samninganna um verðbólgu í ágúst 2026 stóðust ekki, en í október náðist samkomulag um að samningarnir héldu gildi sínu.

Laun hækkuðu mest hjá sveitarfélögum utan Reykjavíkur

Frá upphafi lotunnar til júní 2026 hækkaði grunntímakaup á vinnumarkaðnum í heild um 18,7% og vísitala neysluverðs um 12,2%. Kaupmáttur grunntímakaups jókst því um 5,8%. Hækkanir eftir mörkuðum voru eftirfarandi:

• Sveitarfélög utan Reykjavíkur: 20,1%

• Ríki: 19,6%

• Reykjavíkurborg: 18,8%

• Almennur markaður: 18,4%

Í maí 2026 voru regluleg mánaðarlaun fullvinnandi að meðaltali 935 þúsund krónur og miðgildið 843 þúsund krónur.

Ný greining á launaskriði og launaþróun eftir launastigi

Stýrihópur stjórnvalda, SA og ASÍ óskaði eftir greiningu á launabreytingum umfram kjarasamningsbundnar hækkanir, og hún er nýjung í skýrslunni. Henni er ætlað að varpa ljósi á umfang og þróun launaskriðs. Þar er meðal annars birt frummat á innbyggðum hækkunum kjarasamninga, sem skýrast að miklu leyti af sjálfvirkum hækkunum vegna starfsaldurs. Í skýrslunni er einnig sérstök umfjöllun um launabreytingar eftir launastigi, sem sýnir hvernig launaþróunin dreifist.

Atvinnuleysi yfir meðaltali OECD í fyrsta sinn frá 2010

Hagvöxtur hefur verið lítill síðustu ár og dregið hefur úr spennu á vinnumarkaði. Atvinnuleysi hefur verið tiltölulega lágt hér í alþjóðlegum samanburði. Það hefur þó aukist og fór á öðrum ársfjórðungi 2026 yfir meðaltal OECD í fyrsta sinn frá árinu 2010. Verðbólga hefur verið þrálátari en spár gerðu ráð fyrir og mældist 5,9% í október. Horfurnar ráðast að verulegu leyti af stríðsátökum og áhrifum þeirra á orkuverð í heiminum. Fjárhagsstaða heimila er þó almennt sterk. Kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann hefur aukist og skuldir heimila hafa lækkað sem hlutfall af ráðstöfunartekjum.

Borgartúni 27, 105 Reykjavík
Kt. 630387-2569

595 5100
Opnunartími BHM

Símaopnunartími þjónustuvers:
mán. til fös. 10:00 - 12:00

Opnunartími skrifstofu:
mán. til fim. 9:00 - 16:00
fös. 9:00 - 13:00

Hagnýtt