
Meiri tekjujöfnuður en á öðrum Norðurlöndum
Ísland hefur áður verið á svipuðum stað og Slóvakía og Slóvenía hvað tekjujöfnuð varðar en sker sig nú meira úr. Í samanburðinum fyrir árið 2025 var Gini-stuðull Íslands [PH1] 22,4, samanborið við 23,0 í Slóvakíu og 24,6 í Slóveníu. Ísland mældist einnig með meiri tekjujöfnuð en önnur Norðurlönd. Stuðullinn var 23,7 í Noregi, 27,1 í Finnlandi, 28,2 í Danmörku og 28,6 í Svíþjóð. Meðaltal ESB var 29,2.
Félagsleg aðstoð jafnar tekjur
Þegar félagsleg aðstoð er undanskilin breytist röð landanna nokkuð. Gini-stuðull Íslands er þá 28,5 og Tékkland, Slóvakía og Slóvenía mælast með örlítið meiri tekjujöfnuð. Ísland mælist þó enn með meiri jöfnuð en önnur Norðurlönd. Munurinn á niðurstöðum með og án félagslegrar aðstoðar sýnir jöfnunaráhrif hennar á ráðstöfunartekjur hér á landi.
Gini-stuðullinn tiltölulega stöðugur undanfarin ár
Tekjuójöfnuður jókst fyrir fjármálakreppuna en dróst síðan verulega saman. Undanfarin ár hefur Gini-stuðullinn haldist tiltölulega stöðugur og verið mun lægri en þegar hann náði hámarki árið 2009. Frá 2021 hefur hann verið á bilinu 22,2–23,6. Mælingin árið 2026 er sú hæsta frá 2021, en hækkunin frá fyrra ári er innan skekkjumarka.






