
BHM hefur skilað umsögn til velferðarnefndar Alþingis um frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra til breytinga á húsaleigulögum (reglubundnar breytingar á leigufjárhæð), 157. mál. Bandalagið styður markmið frumvarpsins um aukinn fyrirsjáanleika og húsnæðisöryggi leigjenda. Það gerir hins vegar verulegan fyrirvara við að reglubundnar hækkanir samkvæmt föstu hlutfalli eða fastri fjárhæð megi aldrei verða meiri en hækkun vísitölu neysluverðs til verðtryggingar.
Samkvæmt frumvarpinu þurfa að líða minnst 12 mánuðir milli reglubundinna breytinga á leigufjárhæð og þar með verður mánaðarleg vísitölutenging leigu óheimil. BHM telur að þetta lágmarksmillibil geti aukið fyrirsjáanleika fyrir leigjendur. Breytingin sé í samræmi við valkost sem starfshópur stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins fjallaði um í skýrslunni „Valkostir til að draga úr sjálfvirkum verðbreytingum“ (2026). Lengra bil milli breytinga tryggi þó ekki eitt og sér lægri húsnæðiskostnað, enda kunni leigusalar að taka mið af breyttum forsendum þegar upphafsleiga er ákveðin.
Fyrirvari BHM við þakið felur ekki í sér andstöðu við aukna vernd leigjenda. Hann lýtur að því að meta þurfi vandlega hvort útfærslan geti dregið úr framboði langtímaleiguhúsnæðis eða orðið til þess að leigusalar taki aukið tillit til væntra kostnaðarhækkana við ákvörðun upphafsleigu. Í mati á áhrifum frumvarpsins kemur sjálft fram að búast megi við að grunnfjárhæð leigu verði ákveðin með hliðsjón af verðbólguvæntingum.
Í umsögninni er vísað til könnunar Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands meðal félagsfólks aðildarfélaga BHM og fleiri stéttarfélaga háskólamenntaðra. Niðurstöður hennar benda til þess að leiga sé mörgum fremur tímabundið úrræði en varanleg lausn. Þær benda einnig til þess að aðeins lítill hluti svarenda leigi af óhagnaðardrifnum leigufélögum. BHM áréttar að breytingar á reglum um leigufjárhæð séu aðeins einn þáttur í því að bæta húsnæðisöryggi. Þær þurfi að haldast í hendur við aukna uppbyggingu minni og hagkvæmari íbúða, bæði til leigu og sölu.
Umsögnina má lesa í heild sinni hér.





