
Þegar ungt fólk kemur út á vinnumarkað er ævinlega forgangsmál að koma sér upp þaki yfir höfuðið, hvenær sem það skeið hefst í lífi fólks. Þegar starfsævin hefst fyrir alvöru, oft að loknu háskólanámi, glímir þetta unga fólk oftar en ekki við þungar fjárhagslegar byrðar. Til marks um það eru há endurgreiðslubyrði námslána, hátt húsnæðisverð, hátt leiguverð og skortur á hagkvæmum húsnæðiskostum. Allt hefur þetta áhrif á hversu erfið fyrstu skrefin að fjárhagslegu sjálfstæði geta verið ungu fólki. Þessum veruleika hefur BHM vakið athygli á um langt skeið og bent á leiðir til lausna. Um 10% félagsmanna í aðildarfélögum BHM búa í leiguhúsnæði. Af þeim segja tæplega 27% að húsnæðiskostnaðurinn sé þeim þungbær (Lífskjarakönnun BHM 2024).
Húsnæðisstefna með samfélagslega skírskotun
Það er því ánægjuefni þegar það gerist að stjórnvöld, bæði ríki og Reykjavíkurborg, stíga stór skref til að bregðast við vandanum. Sú hefur ekki alltaf verið raunin. Í nýrri húsnæðisáætlun Reykjavíkur til ársins 2034 er gert ráð fyrir að byggðar verði allt að 16.000 nýjar íbúðir á næstu tíu árum. Af þeim verða að minnsta kosti 35%, eða um 5.600 íbúðir, byggðar á félagslegum og óhagnaðardrifnum forsendum. Þar er meginmarkmiðið að tryggja hagkvæmt húsnæði fyrir fjölbreytta hópa, meðal annars ungt fólk, námsmenn, fyrstu kaupendur og einstaklinga með takmarkaða greiðslugetu.
Þessi uppbygging er árangur af markvissu samstarfi borgaryfirvalda við ríkið, verkalýðshreyfinguna og lífeyrissjóði. Einnig hafa borgaryfirvöld tekið höndum saman við stéttarfélög um uppbyggingu í nýjum hverfum, þar sem sérstakt húsnæðisfélag í eigu verkalýðshreyfingarinnar tekur þátt í að byggja upp óhagnaðardrifið leiguhúsnæði.
Á bak við þessar aðgerðir liggur fjárhagslegur stuðningur stjórnvalda með þríþættri meðgjöf: úthlutun lóða á hagstæðum kjörum, stofnframlögum úr ríkissjóði og lánveitingum frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Þannig verður til húsnæði, sem leigt er á lægra verði en almennt gerist á markaði, þar sem tekjutakmarkanir og önnur skilyrði tryggja að þeir hópar sem þurfa á stuðningi að halda njóti úrræðanna.