
BHM, ASÍ, BSRB og KÍ standa fyrir opnum fundi í tilefni af Hinsegin dögum í Iðnó föstudaginn 7. ágúst kl. 16:00–17:00. Léttar veitingar verða í boði.
Þessar spurningar verða til umfjöllunar á opnum fræðslufundi um stöðu hinsegin fólks á vinnumarkaði og mikilvægi hinsegin vottunar. Rætt verður um þær hindranir sem hinsegin fólk getur mætt í atvinnulífinu, þar á meðal fordóma og bakslag, en jafnframt um leiðir til að skapa öruggara, réttlátara og inngildandi vinnuumhverfi.
Á fundinum flytja tveir fyrirlesarar erindi:
- Vilhjálmur Hilmarsson, hagfræðingur hjá Visku – stéttarfélagi, fjallar um efnahagslega stöðu hinsegin fólks.
- Kári Garðarsson, framkvæmdastjóri Samtakanna ’78, kynnir hinsegin vottun og fjallar um mikilvægi hennar fyrir vinnustaði.
Að erindunum loknum fer fram sófaspjall þar sem fulltrúar úr ólíkum starfsgreinum og af vinnumarkaðinum ræða reynslu sína, áskoranir og leiðir til úrbóta.
Þátttakendur í umræðunum eru:
- Sara Dögg Svanhildardóttir, sviðsstjóri fræðslu- og upplýsingasviðs ASÍ
- Hafþór Óskarsson, grunnskólakennari
- Irma Alexandra, forritari
- Erna Dís Ingólfsdóttir, mannauðsstjóri Íslandshótela
Fundarstjóri: Þorbjörg Þorvaldsdóttir, fyrrverandi formaður Samtakanna ´78.
Á fundinum undirrita Félags- og húsnæðismálaráðherra, Samtökin '78, Samtök atvinnulífsins og heildarsamtök launafólks viljayfirlýsingu um samstarf að því markmiði að stuðla að jafnrétti, fjölbreytileika og inngildingu á íslenskum vinnumarkaði.
Tengdar færslur
23. október 2026BHM styður aukinn fyrirsjáanleika í leigu en gerir fyrirvara við þak á hækkanir
19. október 2026Vellíðan í vinnu er sameiginlegt verkefni
17. október 2026Landsréttur dæmir uppsögn hjá Sjúkratryggingum Íslands ólögmæta – BHM metur næstu skref
14. október 2026Hádegisfundur BHM og LÍS - Ungt fólk á bið: Námslán, húsnæði og leiðin til sjálfstæðis
8. október 2026Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin
7. október 2026Umsögn BHM um fjárlagafrumvarp 2027
