
BHM, ASÍ, BSRB og KÍ standa fyrir opnum fundi í tilefni af Hinsegin dögum í Iðnó föstudaginn 7. ágúst kl. 16:00–17:00. Léttar veitingar verða í boði.
Þessar spurningar verða til umfjöllunar á opnum fræðslufundi um stöðu hinsegin fólks á vinnumarkaði og mikilvægi hinsegin vottunar. Rætt verður um þær hindranir sem hinsegin fólk getur mætt í atvinnulífinu, þar á meðal fordóma og bakslag, en jafnframt um leiðir til að skapa öruggara, réttlátara og inngildandi vinnuumhverfi.
Á fundinum flytja tveir fyrirlesarar erindi:
- Vilhjálmur Hilmarsson, hagfræðingur hjá Visku – stéttarfélagi, fjallar um efnahagslega stöðu hinsegin fólks.
- Kári Garðarsson, framkvæmdastjóri Samtakanna ’78, kynnir hinsegin vottun og fjallar um mikilvægi hennar fyrir vinnustaði.
Að erindunum loknum fer fram sófaspjall þar sem fulltrúar úr ólíkum starfsgreinum og af vinnumarkaðinum ræða reynslu sína, áskoranir og leiðir til úrbóta.
Þátttakendur í umræðunum eru:
- Sara Dögg Svanhildardóttir, sviðsstjóri fræðslu- og upplýsingasviðs ASÍ
- Hafþór Óskarsson, grunnskólakennari
- Irma Alexandra, forritari
- Erna Dís Ingólfsdóttir, mannauðsstjóri Íslandshótela
Fundarstjóri: Þorbjörg Þorvaldsdóttir, fyrrverandi formaður Samtakanna ´78.
Á fundinum undirrita Félags- og húsnæðismálaráðherra, Samtökin '78, Samtök atvinnulífsins og heildarsamtök launafólks viljayfirlýsingu um samstarf að því markmiði að stuðla að jafnrétti, fjölbreytileika og inngildingu á íslenskum vinnumarkaði.
Tengdar færslur
30. júlí 2026Morgunverðarfundur um stöðu háskólamenntaðra á húsnæðismarkaði
- 20. júlí 2026
Sumarlokun skrifstofu og þjónustuvers
10. júlí 2026Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa?
7. júlí 2026Hækkun komugjalda án samráðs: BHM varar við áhrifum á forsendur kjarasamninga
30. júní 2026Atvinnurekendur bera hallann af sönnunarskorti ef tímaskráningu er ábótavant
30. júní 2026Engin sátt á vinnumarkaði nema allir sitji við sama borð
